Fréttir
IFT_radstefna_2009
IFT ráðstefna 2009

AVS rannsóknir kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu í Bandaríkjunum

11.6.2009

Árleg ráðstefna Institute of Food Technologists (IFT) var haldin í fyrstu viku júnímánaðar í Anaheim, Kalíforníu. Þar voru rannsóknir Matís kynntar og var fyrirtækið með hvorki fleiri né færri en 15 veggspjöld.

IFT (Institute of Food Technologists) ráðstefnan er stærsta matvælavísindarástefna sem haldin er í heiminum og er sótt af fleiri þúsund manns árlega. Meðal rannsókna/verkefna sem Matís kynnti voru verkefni styrkt af AVS tengt lífvirkum peptíðum úr þorski, loðnu og bragðefnum, lífvirkni fjölfenóla úr sjávarfangi, vinnslueiginleikum fiskipeptíða og einnig rannsóknir tengt verkunareinkennum saltfisks. Verkefnin sem voru kynnt eru:

Rannsóknirnar vöktu mikla athygli og var mikið um fyrirspurnir um samstarf. Ljóst er frá þessarri ráðstefnu að sérstaklega er mikil vakning tengt lífvirkum afurðum úr hafinu og er Matís í fararbroddi á þessu sviði.  Næsta IFT ráðstefna er í Chicago 2010 og stefnir Matís á aðra sterka innkomu þá með kynningar á verkefnum styrktum af AVS.



Senda grein

header2


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica