Ferð kræklingaræktenda til Kanada
Um mánaðarmótin febrúar mars fór hópur frumkvöðla í kræklingarækt á Íslandi til Kanada til að kynna sér uppbyggingu og þróun kræklingaræktar. En AVS sjóðurinn styrkti þá til fararinnar.
Markmið ferðarinnar var að afla upplýsinga um stjórnsýslu, þróunarstarf og rekstarlegar forsendur fyrir ktæklingarækt. Tilraunir hófust árið 1978 á Prince Edward Island og fékkst fyrsta uppskeran fjórum árum síðar, en árið 1990 var framleiðslan komin í 3.000 tonn og fram til ársins 2000 jókst framleiðslan um 20% á ári og þá var framleiðslan komin í 18.000 tonn um aldamótin. Þessi framleiðsla er talin hafa skapað rúmlega 600 ársverk í ræktun og pökkun afurða.
Ferðalangarnir hafa skilað AVS sjóðnum áhugaverðri skýrslu með upplýsingum sem þeir fengu í ferðinni. Það er greinilegt að töluverðs má vænta af þessari nýju atvinnugrein ef allt gengur vel, en það er síður en svo fast í hendi og mikilvægt að íslenskir frumkvöðlar standi saman og miðli af reynslu til hvers annars, svo árangur verði sem mestur á sem skemmstum tíma.
Í ár hefur AVS sjóðurinn veitt Skelrækt, samtökum kræklingaræktenda, þrjá smástyrki til að efla innlenda þekkingu í kræklingarækt, auk þess er að hefjast stærra verkefni þar sem stefnt er að því að stytta ræktunartíma kræklings.
Ferðaskýrsluna má nálgast hér.
Tilvísunarnúmer AVS: S 005-09

