Úthlutun 2009 liggur fyrir
Fjöldi umsókna til AVS sjóðsins hafa aldrei verið fleiri en í ár og greinilegt að það er mikil hugmyndavinna í gangi um allt land. Alls bárust rúmlega 160 umsóknir þar sem sótt var um ríflega 800 m.kr. og greinilegt að það yrði vandasamt verk að velja umsóknir sem styrkja ætti.
Nú liggur fyrir að 76 verkefni fá styrk á þessu ári og því þarf að hafna rúmlega 80 umsóknum. Samtals eru þessi verkefni að fá tæplega 325 m.kr. Eins og undanfarin ár þá eru umsóknir metnar í fjórum faghópum AVS sjóðsins þar sem teknar eru fyrir umsóknir sem taka á fiskeldi, líftækni, markaði og svo umsvifamesta flokknum sem tekur á umsóknum er falla að veiðum og vinnslu.
Af fiskeldisverkefnum er mest áberandi verkefni er tekur á kynbótum á þorski, en miklar vonir eru bundnar við þorskeldi í framtíðinni, þetta verkefni hefur verið stutt af sjóðnum í nokkur ár. Meðal nýrra verkefna er átaksverkefni í kræklingarækt þar sem nokkrir kræklingaræktendur og félag þeirra hafa sameinast um að efla þá atvinnugrein og byggja upp þekkingu sem nýtist öllum í greininni.
Meðal markaðsverkefna eru mest áberandi nokkur átaksverkefni í markaðssetningu á bleikjuafurðum, AVS sjóðurinn hóf stuðning við verkefnin á árinu 2007 þar sem í væntum var mikil aukning í framleiðslu á bleikju. Það er ekki hægt að segja annað en að rífandi gangur sé í þessum verkefnum og hefur gengið vel að auka við sölu í takt við framleiðslu. Meðal markaðsverkefnanna er einnig mikilvægt verkefni þar sem hannað hefur verið merki um ábyrgar fiskveiðar.
Nokkur öflug líftækniverkefni hafa verið styrkt af sjóðnum og nú er í bígerð að þróa fóðurbóluefni fyrir fisk, önnur verkefni sem hafa verið í gangi undanfarið eru að skila mjög spennandi niðurstöðum eins og verkefni þar sem verið er að kanna lífefnainnihald í þangi, og annað þar sem þróaðir eru ferlar til að vinna lífvirk bragðefni úr sjávarfangi.
Umsóknir sem falla að veiðum og vinnslu eru að vanda mjög margar enda tilheyra þessum flokki allar umsóknir sem tengjast hefðbundinni fiskvinnslu, allt frá veiðum til fullgerðar vöru. Meðal umsókna eru verkefni sem fjalla um efnainnihald í íslensku sjávarfangi, nýjar leiðir til þess að nýta fiskprótein, nýtingu og útflutning á ígulkerjum, sjálfvirk fjarlæging á beingarði, svo eitthvað sé nefnt.
Á næstu dögum verða settar inn nánari upplýsingar um öll þessi verkefni á heimasíðu sjóðsins.

