Fréttir
Marorka_-_kerfi
Maren orkustjórnunarkerfi

Marorka gerir risasamning við Kongsberg

11.5.2009

Marorka hefur gert sinn stærsta samning til þessa við norska fyrirtækið Kongsberg. Kongsberg er einn stærsti framleiðandi brúarkerfa í heiminum og setur fyrirtækið upp brúarkerfi í 350-400 skip á ári. Samkvæmt samningnum verður Maren orkustjórnunarkerfi Marorku sett upp í öllum brúarkerfum Kongsberg og felur samningurinn því í sér verulega aukningu á útbreiðslu Maren kerfisins.

Marorka er leiðandi í framleiðslu á orkustjórnunarkerfum og rannsóknum á sviði orkustjórnunar um borð í skipum. Maren orkustjórnunarkerfið notar meðal annars ítarlega greiningu á orkukerfi skipsins ásamt stærðfræðilegri hermun til þess að draga úr olíunotkun þess.

Fyrirtækið hefur á undanförnum árum verið dyggilega stutt af íslenskum samkeppnissjóðum á vegum Rannís og AVS og hefur sá stuðningur skipt sköpum í þeim árangri sem fyrirtækið hefur núna náð. Einnig er Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins öflugur hluthafi í Marorku. “Þessi markvissa aðkoma samkeppnissjóðanna að Marorku og hlutafé Nýsköpunarsjóðs hefur verið afgerandi þáttur í þróun og vexti Marorku,, segir Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri.



Senda grein

header16


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica