Fréttir

Þurrkaður kolmunni

Þurrkaður kolmunni - 28.5.2009

Hjá Norlandia á Ólafsfirði hefur verið unnið að tilraunavinnslu á þurrkuðum kolmunna og hefur þeim tekist að sýna fram á að framleiða má fyrsta flokks vöru til manneldis úr frystu hráefni.

Lesa nánar

 
Að draga línu

Stór beita = stór fiskur - 25.5.2009

Stærri fiskur bítur frekar á stóra beitu og að sama skapi veiðist mun meira af smáfiski ef beitan er smá. Þó beitustærðin sé meira afgerandi þáttur en krókastærð, þá skiptir krókastærð einnig máli og að jafnaði veiðist stærri fiskur á stærri króka við línuveiðar.

Lesa nánar

 
Þorskur í eldiskví

Nauðsynlegt er að vinna eldisþorsk fyrir dauðastirðnun - 18.5.2009

Afurðir úr eldisþorski standast samanburð við afurðir úr villtum þorski, en það er mikilvægt að vinna eldisþorskinn fyrir dauðastirðnun. Ef það er ekki gert þá verður los í flökunum áberandi.

Lesa nánar

 
Merki AVS

Úthlutun 2009 liggur fyrir - 14.5.2009

Fjöldi umsókna til AVS sjóðsins hafa aldrei verið fleiri en í ár og greinilegt að það er mikil hugmyndavinna í gangi um allt land. Alls bárust rúmlega 160 umsóknir þar sem sótt var um ríflega 800 m.kr. og greinilegt að það yrði vandasamt verk að velja umsóknir sem styrkja ætti.

Lesa nánar

 
Marorka_-_kerfi

Marorka gerir risasamning við Kongsberg - 11.5.2009

Marorka hefur gert sinn stærsta samning til þessa við norska fyrirtækið Kongsberg. Kongsberg er einn stærsti framleiðandi brúarkerfa í heiminum og setur fyrirtækið upp brúarkerfi í 350-400 skip á ári. Samkvæmt samningnum verður Maren orkustjórnunarkerfi Marorku sett upp í öllum brúarkerfum Kongsberg og felur samningurinn því í sér verulega aukningu á útbreiðslu Maren kerfisins.

Lesa nánar

 

header13


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica