Fréttir
Þorskur kallar eftir fóðri
Svangur þorskur

Votfóður fyrir eldisþorsk

7.4.2009

Það hefur ekki tekist að fá villtan þorsk til að taka þurrfóður í áframeldi og því hefur hann verið fóðraður á heilum fiski s.s. loðnu og síld. Aðgangur að slíku hráefni er ótryggur og oft er samsetning næringarefna ekki heppilegt til að tryggja bestu afurðagæði og fóðurnýtingu.

Við vinnslu sjávarfangs fellur mikið til af aukaafurðum sem innihalda verðmæt næringarefni. Hinsvegar er mikill kostnaður oft bundinn við geymslu á slíku hráefni í frysti. Það þótti því áhugavert fyrir fáeinum árum þegar kynnt var í Noregi að með því að lúta ferskt hráefni væri mögulegt að geyma hráefni óskemmt í lengri tíma og ekki var krafist kælingar né frystingar. Þessi geymsluaðferð var kynnt sem hluti af framleiðsluferli við gerð votfóðurs og var kynnt undir nafninu „Gellyfeed“. Í þessu AVS-verkefni er lögð áhersla á að meta forsendur þess að taka í notkun þessa aðferð við framleiðslu votfóðurs fyrir eldisþorsk hér á landi. Aðferðin byggir á tveimur framleiðsluþrepum, varðveislu hráefnis og fóðurpillugerð. Við varðveislu hráefnis er lút (KOH) blandað saman við hráefnið og sýrustig þess haldið stöðugu við pH 11.  Rannsóknir staðfestu hinsvegar að geymslutíminn á slíku hráefni er aðeins um 14 dagar og því hentar þessi aðferð ekki sem langtíma geymsluaðferð. Gæði próteins rýrna stórlega og er hráefnið því óhæft til votfóðurgerðar. Aðferðin getur  verið gagnleg við eyðingu baktería, vírusa og sníkjudýra í hráefni reynist þörf á því.

Frysting  og meltuvinnsla eru því einu raunhæfu valkostirnir við geymslu hráefnis til votfóðurgerðar.  Óvíst er hvort nýja matvælafrumvarpið, sem bíður afgreiðslu á alþingi, muni hafa áhrif á nýtingu aukaafurða til votfóðurgerðar. Af gögnum sem aflað var er ljóst að löggjöf á evrópska efnahagssvæðinu bannar ekki að aukaafurðir frá villtum þorski séu notaðar í fóður fyrir eldisþorsk.

Fóður   Prótein %  Fita % Þurrefni % Verð kr/kg  Verð Prótein kg
 Loðna

 13

 8

28

40

 308

 Síld

 17

 12

32

40

 235

Votfóður

25

10

56

60

240

Þurrfóður

47

17

90

145

309


Á Vestfjörðum er framleiddur 80% af öllum þorski í áframeldi. Það var því skoðað sérstaklega að nýta aukaafurðir frá vinnslum á norðanverðum Vestfjörðum til votfóðurgerðar með hefðbundinni aðferð með algin sem bindiefni. Niðurstaðan benda til þess að sameiginleg framleiðsla á votfóðri fyrir alla framleiðendur eldisþorsks á svæðinu geti verið áhugaverður kostur.

Skýrsla verkefnisstjóra: Votfóður fyrir þorsk

 Tilvísunarnúmer AVS: S 034-05



Senda grein

header18


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica