Fréttir
Sjávarútvegssýningin í Boston
Sjávarútvegssýningin í Boston 2009
Úrslit bleikjuppskriftarkeppni Aquanor og CIA í fullum gangi

Rífandi gangur í markaðssetningu á bleikju

26.3.2009

Síðastliðin tvö ár hefur Oddeyri ehf. ásamt samstarfsaðilum sínum, Íslandsbleikju ehf., Samherja hf. og Aquanor Marketing unnið að því að kynna ferska íslenska bleikju á bandarískum smásölumarkaði með góðum árangri. Lagt var af stað með þau markmið að auka söluna um 200% á árinu 2007 og svo um 30% á árinu 2008 og hefur það gengið eftir. Þrátt fyrir þessa miklu söluaukningu hefur tekist að halda afurðaverði háu. Stefnt er á 20% söluaukningu á þessu ári.

Mikið kynningarefni hefur verið unnið í tengslum við verkefnið og má þá helst nefna þróun uppskrifta, útgáfu myndabókar og vinnslu auglýsinga sem birst hafa í tímaritum og á vefsíðum. Þyngst vega þó vafalaust heimsóknir til viðskiptavina og þátttaka í sýningum en sjávarútvegssýniningin í Boston hefur verið heimsótt síðastliðin þrjú ár og hefur matreiðslumaður ætíð verið með í för og séð hefur um að matreiða íslenska bleikju fyrir gesti sýningarbássins. Árangurinn af þátttöku í sýningunni hefur verið mjög góður og reynslan sýnir svo ekki sé um villst að þeir sem fá tækifæri til að smakka bleikjuna séu mun líklegri til að kaupa hana heldur en þeir sem ekki hafa smakkað. Þá fyrst sker hún sig úr varðandi bragðgæði og áferð.

Virtasti matreiðsluskóli Bandaríkjanna, The Culinary Institute of America var heimsóttur árið 2008. Þar hélt Birgir Össurarson markaðstjóri hjá Samherja fyrirlestur um íslenska bleikju og bleikjueldi fyrir fullsetinn sal núverandi og verðandi matreiðslumanna auk þess sem Einar Geirsson matreiðslumeistari á Rub 23 á Akureyri sýndi viðstöddum hvernig hægt er að matreiða sex mismunandi rétti úr einu bleikjuflaki. Gestir fengu að bragða á afrakstrinum og vakti bleikjan mikla lukku.

Matreiðsla á bleikju

Einar Geirsson sýnir núverandi og verðandi matreiðslumönnum í CIA hvernig

hægt er að matreiða sex mismunandi rétti úr einu bleikjuflaki.

Í framhaldinu var haldin keppni um bestu bleikjuuppskriftina innan skólans og voru tveir matreiðslumenn valdir til að elda íslenska bleikju á sjávarútvegssýningunni í Boston 2009 sem nú er nýafstaðin. Keppnin vakti mikla lukku á sýningunni og þar var þekktur sjónvarpsmaður sem stjórnaði auk þess sem dómararnir voru þekktir meistarakokkar af svæðinu. Sigurveigarinn hlaut ferð til Íslands að launum en hingað kemur hann í fylgd meistarakokkanna og sjónvarpsmanna sem munu gera sjónvarpsþátt um herlegheitin.

Þegar ráðist er í markaðssetningu með mikla söluaukningu í huga munar mestu um stóru viðskiptavinina. Íslandsbleikja og Aquanor hafa náð samningum við veitingahúsakeðjuna Bonefish sem leggur áherslu á grillaðan ferskan fisk og rekur vel á annað hundrað veitingastaði víðsvegar um Bandaríkin. Sú keðja keypti meira en 200 tonn af íslenskum bleikjuflökum á árunum 2007-2008 sem gerir hana að stærsta einstaka kaupanda bleikjuflaka í heiminum.

Tvær heimsóknir hafa verið farnar til Bonefish, sú fyrri árið 2007 á innanhúsráðstefnu Bonefish. Þar var íslensk bleikja kynnt og útbjó Einar Geirsson fimm mismunandi bleikjurétti til að leyfa ráðstefnugestum að bragða á og svo heillaðir voru viðstaddir að óvænt báðu ráðstefnuhaldarar matreiðslumeistarann um að útbúa hádegisverð úr bleikju fyrir viðstadda að auki.

Að ósk Bonefish heimsótti Einar höfuðstöðvar Bonefish í fyrra í tengslum við kynningarátak á íslenskri bleikju á veitingastöðum þeirra. Hann sýndi matreiðslumönnum keðjunnar hvernig best er að meðhöndla bleikjuna og fóru uppskriftir Einars á matseðil Bonefish í átakinu. Bonefish hefur óskað eftir framhaldi á þessu samstarfi.

Síðastliðið sumar heimsótti svo hópur frá Bonefish Ísland ásamt kvikmyndatökumönnum. Hópurinn heimsótti fiskeldisstöðvar og flakavinnslu Íslandsbleikju og notuðu ferðina til að taka upp efni sem notað var til að kynna íslenska bleikju í sjónvarpsauglýsingum sem sýndar voru á netinu og í sjónvarpi á landsvísu í Bandaríkjunum. Hægt er að sjá eina af auglýsingunum hér.

Stuðningur AVS sjóðsins hefur skipt þetta átak mjög miklu máli og gert Íslandsbleikju kleift að koma að markaðsátakinu með fjármuni sem nauðsynlegir eru til að komast inn á stóra kaupendur með nýjar vörur. Mikilvægt er að halda áfram miklu og öflugu markaðsstarfi á komandi árum og tryggja að vel sé að því staðið svo íslensk bleikja missi ekki þann sess sem verið er að skapa henni á erlendum mörkuðum sem leyndardómsfullri gæðavöru. Aðeins með því verður hátt afurðaverð fyrir bleikjuafurðir mögulegt, og þar með verður styrkum stoðum skotið undir fiskeldi á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Sigrún Helgadóttir hjá Oddeyri ehf

Tivísunarnúmer AVS: R 020-07

Senda grein

header19


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica