Spennandi niðurstöður í lúðueldi
Áhrif seltu á vöxt, fóðurnýtingu og blóðlífeðlisfræði var kannað hjá lúðu og sýna niðurstöður að vöxtur og fóðurnýting er 20% hærri hjá lúðu aldri á lágri seltu (hér 15 prómill) og að þessi áhrif séu óháð stærð fisksins. Í heildina benda niðurstöðurnar til þess að vöxt, fóðurnýtni og fjárhag eldisins megi stórbæta með því að ala lúðu við u.þ.b. 15 prómill seltu.
Lokið er AVS verkefninu “Samkeppnishæft lúðueldi í strandeldisstöðvum”. Verkefnið samstóð af 5 ólíkum verkþáttum og helstu niðurstöður og má lesa um helstu niðurstöðurnar hér.
Gagnvirk áhrif ljóslotu og lágrar seltu á vöxt, blóðlífeðlisfræði og fóðurnýtingu lúðuseiða voru könnuð. Bætt fóðurnýtni og aukinn vöxtur sást í þeim hópum sem aldir voru við stöðugt ljós, og að auki fundust vísbendingar um jákvæð langtímaáhrif stöðugs ljós á seiðastigi á vöxt á seinni stigum.
Lúðuseiði voru alin við mismunandi súrefnismettun (57% til 150%) í eldisvatni. Súrefnismettun hafði umtalsverð áhrif á vöxt lúðuseiðanna. Það er augljós ávinningur fyrir lúðueldisstöðvar af því að auka súrefnismettun úr 80% í 100%. Með því mun framleiðsla aukast um nærri 20% vegna meiri vaxtarhraða jafnframt því sem stærri hluti af framleiðslunni kemst í hærri verðflokk sem greiddur er fyrir stærri fisk.
Framkvæmdar voru tvær tilraunir með mismunandi próteinmagn í fóðri (sama orkuinnihald)fyrir tvo stærðar flokka af lúðu. Niðurstöður tilraunanna og samanburður við áður birtar niðurstöður er að lágmarksþörf próteins til hámarks vaxtar í lúðu er 41% í þe fyrir 560 g lúðu og 35% í fóðri fyrir 970 g lúðu. Markaðs fóður fyrir lúðu hjá helstu fóðurframleiðendum (Skretting og Laxá) inniheldur í dag 47 – 49% prótein, þannig að þessar niðurstöður geta leitt til verulegrar lækkunar á hráefniskostnaði í framtíðinni.
Við höfum metið hagræn áhrif af helstu niðurstöðum verkefnisins með því að hanna einfalt fjárhagslegt líkan. Notast var við raunverulegar framleiðslu- og kostnaðartölur frá Íslandi, Hjaltlandseyjum og Noregi. Í stuttu máli sýna niðurstöður líkansins að nærri má tvöfalda hagnað strandeldis. Þessar niðurstöður geta skipt sköpum um samkeppnishæfni lúðueldis í strandeldisstöðvum á Íslandi
Tilvísunarnúmer AVS: R 031-05
Skýrsla: Competitive halibut farming in land based facilities

