Fréttir
Ferskur fiskur
Fersk flök í frauðplastkassa

Kæling fyrir pökkun ferskra flaka

4.3.2009

Hjá Matís er unnið að athugunum á áhrifum þess að forkæla afurðir fyrir pökkun með tilliti til geymsluþols afurða. Eftir því sem afurðir eru nær ákjósanlegu hitastigi við pökkun, því minni er kæliþörfin í sjálfu flutningaferlinu.

Afar mikilvægt að lækka hitastig vörunnar í litlum einingum áður en henni er pakkað því annars er hætt við hægri og ójafnri kælingu, sem reyndin er í tilfelli stórra pakkaðra vörueininga.

Forkælingaraðferðirnar, sem eru notaðar í tilraununum, eru vökvakæling og roðkæling og er afurðum pakkað í frauðplastkassa að lokinni snyrtingu og skurði í hnakkastykki. Kassarnir eru geymdir við hitastýrðar aðstæður þar sem líkt er eftir raunverulegum flutningaferlum. Fylgst er með breytingum á gæðum og skemmdarferlum með reglulegu millibili. Niðurstöður verða síðan notaðar til að meta geymsluþol afurða sem pakkað hefur verið eftir eða án forkælingar.

 Línurit kæliferill í roðkæli


Þessar forkælingartilraunir nýtast tveimur AVS verkefnum, þ.e. Samþættingu kælirannsókna (R 061-06) og Hermun kæliferla (R 037-08).  Í fyrra verkefninu nýtast þær til markvissari ferlastýringar og útgáfu leiðbeininga fyrir iðnaðinn.  Í Hermun kæliferla er meiri áhersla lögð á flutningaferlana og tengsl forkælingar við hönnun og notkun umbúða í flutningaferlum.  Niðurstöður forkælingartilraunanna koma að gagni við þróun varmaflutningslíkana fyrir ferskan fisk í flutningi, sem nýtast til endurbóta á flutningaferlum. 

Tilvísunarnúmer AVS: R 037-08 og R 061-06



Senda grein

header19


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica