Beint í leiðarkerfi vefsins.
Síðastliðin tvö ár hefur Oddeyri ehf. ásamt samstarfsaðilum sínum, Íslandsbleikju ehf., Samherja hf. og Aquanor Marketing unnið að því að kynna ferska íslenska bleikju á bandarískum smásölumarkaði með góðum árangri. Lagt var af stað með þau markmið að auka söluna um 200% á árinu 2007 og svo um 30% á árinu 2008 og hefur það gengið eftir. Þrátt fyrir þessa miklu söluaukningu hefur tekist að halda afurðaverði háu. Stefnt er á 20% söluaukningu á þessu ári.
Komið hefur í ljós að kúfskel finnst í veiðanlegu magni við suðurströnd landsins, en þéttleikinn er lítill og samsetning stofnsins er ekki samkvæmt þeim óskum sem markaðurinn kallar eftir í dag.
Áhrif seltu á vöxt, fóðurnýtingu og blóðlífeðlisfræði var kannað hjá lúðu og sýna niðurstöður að vöxtur og fóðurnýting er 20% hærri hjá lúðu aldri á lágri seltu (hér 15 prómill) og að þessi áhrif séu óháð stærð fisksins. Í heildina benda niðurstöðurnar til þess að vöxt, fóðurnýtni og fjárhag eldisins megi stórbæta með því að ala lúðu við u.þ.b. 15 prómill seltu.
Hjá Matís er unnið að athugunum á áhrifum þess að forkæla afurðir fyrir pökkun með tilliti til geymsluþols afurða. Eftir því sem afurðir eru nær ákjósanlegu hitastigi við pökkun, því minni er kæliþörfin í sjálfu flutningaferlinu.