Fréttir
Höfn í Hornafirði
Höfn í Hornafirði

Mikið sótt í AVS sjóðinn

9.2.2009

Aldrei hafa fleiri umsóknir borist sjóðnum og er um ríflega 30% aukningu að ræða milli ára. Alls staðar að af landinu bárust umsóknir um styrki í verkefni til að auka verðmæti sjávarfangs. Það er greinilega ekki skortur á hugmyndum að nýjum vörum eða atvinnuuppbyggingu.

150 umsóknir hafa borist AVS sjóðnum þar sem sótt er um nærri 800 m.kr. en sjóðurinn hefur aðeins um 354 m.kr til ráðstöfunar eins og á síðasta ári og því er mikið vandaverk framundan að velja bestu verkefnin. Það er enn möguleiki á að sækja um smærri verkefni eða forverkefni svo gera má ráð fyrir miðað við fyrri ár að umsóknir verði hátt á annað hundraðið í lok ársins.

Frá því AVS sjóðurinn hóf starfsemi sína árið 2003 þá hafa verið veittir yfir 350 styrkir að upphæð um 1,2 milljarðar króna. Miðað er við að styrkir séu ekki hærri en sem nemur um 50% af kostnaði verkefnisins þannig að óhætt er að fullyrða að sjóðurinn hafi leyst úr læðingi að minnsta kosti aðra eins upphæð til þróunar og nýsköpunar í íslenskum sjávarútvegi á síðastliðnum 6 árum.

AVS sjóðurinn hefur stutt mörg verkefni sem eru þegar farin að skila töluverðum verðmætum og má þar nefna t.d. öflugan stuðning við markaðssetningu á eldisbleikju, rannsóknir og vinnslu á próteini unnu úr aukafuðrum frá fiskvinnslum, vöruþróun og rannsóknir á fóðri í fiskeldi, bætta vinnsluferla í saltfiski og kælingu á fiski og svo mætti lengi telja. Á heimasíðu sjóðsins má finna mikið af upplýsingum um AVS verkefnin.



Senda grein

header19


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica