Verðmæti uppsjávarfisks aukið með bættri kælitækni
Verkefnið Aukið verðmæti uppsjávarfisks – bætt kælitækni hófst í júní 2008. Markmið verkefnisins er að leggja grunn að nýrri aðferð við kælingu og geymslu uppsjávarfiska um borð í nótaskipum.
Aðferðinni er ætlað að lækka orkukostnað og auka geymsluþol og bæta þar með gæði á lönduðu hráefni uppsjávarfiska. Betri gæði fást með betri kælingu og með því að ná stjórn á saltupptöku í hráefninu. Markmiðið er að gæði landaðs afla verði það mikil að hann verði nýtilegur í vörur sem ætlaðar eru til manneldis.
Fjórir umfangsmestu verkþættinir fela í sér líkanagerð m.a. fyrir kælingu og geymslu uppsjávarfiska, rannsóknir á mismunandi kælikerfum og áhrifum íblöndunarefna að ógleymdri samþættingu líkana og tilrauna.
Áætlaður ávinningur er margþættur. Með minni orkunotkun uppsjávarskipa minnkar mengun og rekstur skipaflotans verður arðbærari. Bætt kælitækni og framþróun í notkun bætiefna gerir fiskframleiðendum kleift að nýta stærri hluta aflans til framleiðslu á verðmætari afurðum bæði til manneldis og fóðurgerðar. Þá er vísindalegur ávinningur fólginn í hagnýtingu tölvuvæddrar varma- og straumfræði (CFD) og lærdómi um hvernig nýta má þá fræðigrein innan sjávarútvegsins. Reiknað er með því að verkefnið komi til með að nýtast útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum, kælitækjaframleiðendum og hönnuðum skipa. Ætlunin er að birta niðurstöður verkefnisins á verkefnafundum og í fagtímaritum innanlands og einnig á alþjóðlegum ráðstefnum og í vísindatímaritum.
Samstarfsaðilar í verkefninu eru Matís ohf, Síldarvinnslan hf og Skinney Þinganes hf.
Nánari upplýsingar um verkefnið má fá hjá Birni Margeirssyni hjá Matís í síma 4225000
Tilvísnunarnúmer AVS: R 051-08

