Fituþol þorsks
Í tilraunum á fóðrun þorsks í eldi hefur komið í ljós að hægt er að auka fituhlutfall í fóðri með stækkandi fiski. En fitan er ódýrari orkugjafi en próteinið svo þessar niðurstöður geta leitt til verulegs sparnaðar í fóðrun eldisþorks.
Fóðurkostnaður er stærsti kostnaðarþátturinn við framleiðslu á eldisþorski og því skiptir miklu máli að leita allra leiða til að finna hagkvæmt fóður. AVS sjóðurinn hefur styrkt nokkur fóðurverkefni á undanförnum árum og nú er að ljúka verkefni sem kallað hefur verið „Ódýrt fóður fyrir þorsk“
Fita er mun hagkvæmari orkugjafi í fóðri heldur en prótein bæði vegna lægra verðs og hærra orkuinnihalds og því er mikilvægt að rannsaka að hve miklu leyti hægt er að auka fitu í fóðri á kostnað próteins án þess að það komi niður á vexti fiskanna. Þorskurinn geymir fituforða sinn í lifrinni en fita í holdi þorsksins fer nánast aldrei yfir 1%. Óæskilegt er talið að lifrarhlutfall þorsksins sé mjög hátt, en algengt er að það sé í kringum 12% í eldisfiski, en það er bæði hærra og lægra í villtum fiski.
Í skýrslu verkefnisstjóra kemur fram að aukin fita í fóðri hefur lítil áhrif á stærð lifrar hjá stærri fiski meðan smærri fiskarnir sýna marktækan mun á vexti lifrar eftir fituhlutfalli í fóðri.
Ýmsar aðrar áhugaverðar niðurstöður má lesa í skýrslunni: Fituþol þorsks.
Tilvísunarnúmer AVS: R 040-04

