Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í tilraunum á fóðrun þorsks í eldi hefur komið í ljós að hægt er að auka fituhlutfall í fóðri með stækkandi fiski. En fitan er ódýrari orkugjafi en próteinið svo þessar niðurstöður geta leitt til verulegs sparnaðar í fóðrun eldisþorks.
Það kemur skýrt fram í niðurstöðum verkefnisins „Lífvirk efni í fiski – heilsufarsleg áhrif“ að aukin fiskneysla hafði mjög jákvæð áhrif á heilsu þeirra sem tóku þátt í tilraunum AVS-verkefnisins, sem unnið hefur verið að síðastliðin þrjú ár.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að sjúkdómarannsóknum í þorskeldi á Vestfjörðum og fylgst var með tegundum og fjölda sjúkdómstilvika þriggja árganga frá smáseiðaeldi til slátrunar. Markmið verkefnisins var að byggja upp reynslu- og gagnagrunn um sjúkdóma í þorskeldi á Íslandi.