Fréttir
Eldisþorskur
Þorskur

Erfðamengjasýn vænleg til að auka verðmæti sjávarfangs.

9.6.2008

Í verkefni styrktu af AVS var smíðað BAC erfðamegnjasafn af þorski. Komið hefur í ljós að safnið er hið ákjósanlegasta tæki til rannsókna á erfðafræði þorsks, sem vænta má að leiði til aukinnar verðmætasköpunar í sjávarútvegi.

Leitað er leiða til að bæta þekkingu á því hvort og hvernig íslenski þorskstofninn skiptist í erfðafræðilega undirstofna sem leggja mismikið til heildarstofnsins, bæði hrygningarstofns og veiðistofns. Þekking á þessu er lykilatriði í stjórnun auðlindarinnar og stýringu veiða. Ef til eru í hafinu nýtanlegir stofnar sem ekki eru nýttir er ljóst að slík þekking gæti aukið verðmæti sjávarútvegs til muna. Þá eru og miklar vonir bundnar við þróun þorskeldis á Íslandi og þekking á sjúkdómsvörnum er lykilatriði þar. Það skortir hinsvegar betri skilning á erfðafræði þorsksins varðandi þessa og ýmsa aðra þætti. Niðurstöður verkefnisins sýna að auðvelt er að finna og einangra gen úr erfðamengi þrosksins með BAC safninu. BAC safnið af þorski er einstakt í heiminum og eykur samkeppnishæfni íslenskra vísindamanna sem að rannsóknunum komu og fyrir íslenskt vísindasamfélag almennt.

Verkefnisstjóri hefur skilað inn skýrslu: BAC erfðamengissafn úr þorski, Gadus morhua

Tilvísunarnúmer AVS: S 008-08



Senda grein

header13


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica