Pensím virkar á inflúensuveirur
Rannsóknir benda til þess að Pensímlausnir drepi inflúensuveirur af stofni H3N2. Þetta eru mjög hvetjandi niðurstöður, sem gefa tilefni til frekari rannsókna.
Eins og áður hefur komið fram í rannsóknum á virkni Pensíms (sjá frétt frá 4. jan. 2008), þá er greinilegt að þorskensím eru til margra hluta nytsamleg. Í þessu forverkefni kom fram að Pensímlausnir drepa inflúensuveiru af stofni H3N2 (mannaflensa), en ekki frumur manna. Lausnin sem notuð var í þessar tilraunir drepur 70% veirunnar á 5 mínútum, og er þetta sama lausn og er notuð í vöru sem gengur undir merkinu PENZIM Lotion og seld er hér á landi.
Að mati verkefnisstjóra þá eru þetta mjög mikilvægar niðurstöður sem gefa tilefni til frekari rannsókna, t.d. skoða hvort Pensím hefur áhrif á aðrar veiru, einkum herpes zoster (áblástur) og herpes singles (ristill). Rannsaka þarf frekar með hvaða hætti Pensím hefur áhrif á veirurnar.Hafin er þróun á hálstöflum, nefþvottaúða, hálsúða og munnskoli með Pensími í samstarfi við sænska fyrirtækið Enzymaica AB.
Tivísunarnúmer S 008-07

