Fréttir
Protein rannsoknir
Protein rannsóknir

Fiskprótein í heilsuvörur

18.4.2008

Ný tækni hefur gert það mögulegt að einangra og hreinsa fiskprótein úr afskurði sem fellur til við hefðbundna flakavinnslu. Próteinin er hægt að nota til að bæta nýtingu í flakavinnslu og í tilbúnar vörur eins og fiskbollur og djúpsteiktan fisk. Vaxandi markaður er einnig fyrir vörur sem unnar eru með ensímum, örsíun og annri tækni. Þessi markaður byggir á ýmsum heilsusamlegum eiginleikum fisk próteinanna og afurða unnum úr þeim.

Árið 2005 stofnaði Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins fyrirtækið Iceprótein ehf til að framleiða og selja vörur úr fiskpróteinum til notkunar bæði í hefðbundna fiskvinnslu og í heilsuvörur.

Verkefnið ´Markaðir fyrir fiskprótein’ sem hófst það ár var samstarfsverkefni Rf og Iceprótein ehf og gekk út á að kortleggja markaði og kanna vörur með fiskpróteinum og efnum unnum úr þeim til að leggja grunn að stefnu, uppbyggingu og markaðstengslum fyrirtækisins.

Lokaskýrslu verkefnisins má nálgast hér fyri neðan. Hún byrjar á almennri lýsingu á próteinum á matvælamarkaði þ.e. mismunandi gerðum próteina og markaðshlutdeild. Þá er gerð grein fyrir helstu vörum með fiskpróteinum þ.e. fiskmjöli, fiskpróteinþykkni, surimi, isolati, fiskmeltu, fisksósu, bragðefnum, gelatíni, fæðubótarefnum og heilsutengdum eiginleikum þeirra. Helsu ályktanir um stöðu fiskpróteina á þessum markaði eru:

Notkun próteinisolats í sprautaðar og tromlaðar vörur mun auka efnahagslegt, næringarfræðilegt og umhverfislegt virði með betri nýtingu hráefna í flakavinnslu. Ennþá eru mörg vandamál sem þarf að leysa. Unnt væri að ná töluvert meiri virðisauka ef hægt væri að framleiða proteinisolat af miklum gæðum úr feitum uppsjávarfiskum.

Þrátt fyrir vísbendingar um ýmsa ágæta vinnslueiginleika fiskpróteina þá eru aðferðir við einangrun og hreinsun skemmra á veg komnar en fyrir jurta- og mjólkurprótein. Þau geta ekki keppt við þau enn sem komið er sem hjálparefni í tilbúin matvæli.

Hins vegar eru góðar líkur á að þróa fleiri fæðubótarefni úr vatnsrofnum fiskpróteinum (VFP) t.d. til að draga úr blóðþrýstingi eða til að auka varnir líkamans gegn álagi. Ákveðnar próteinvörur má jafnvel nota til að stýra matarlyst í baráttunni gegn offitu. Auk þessa þá eru vörur á markaðnum til að lækka blóðsykurstuðull (e. glycemic index).  Markaðurinn fyrir slíkar vörur úr fiskpróteinum er ekki stór en mun að öllum líkindum vaxa auk þess sem tækifæri felast í að nota hefðbundnar framleiðsluaðferðir s.s. gerjun til að auka lífvirkni eiginleika VFP og nota þau í vörur sem neytendur þekkja.  Miklar líkur eru á að saltlitlar fisksósur og fiskbragðefni með sérhannaða lífvirka eiginleika verði á boðstólnum í framtíðinni. Þetta byggist þó að hluta á því að heilsufullyrðingarnar fáist viðurkenndar. Til þess þarf viðamiklar og kostnaðarsamar rannsóknir sem bæði opinberir aðilar og fyrirtæki munu þurfa að kosta.

Skýslan: Markaðir fyrir fiskprótein - Greining á afurðum á markaði

Tivísunarnúmer AVS: R 036-05



Senda grein

header17


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica