Fréttir
Eldiskví
Eldiskvi

Úthlutun áframeldiskvóta

8.4.2008

Sjávarútvegsráðherra hefur samþykkt tillögur stjórnar AVS rannsóknasjóðs varðandi úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.

Þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er. Níu fyrirtæki sóttu um kvóta að þessu sinni, og sóttu þau um tæp 700 tonn, en til ráðstöfunar eru 500 tonn, sem átta fyrirtæki fengu að þessu sinni til þess að vinna með í sínum verkefnum.

Fyrirtæki  Magn úthlutað
 Þorskeldi ehf, Stöðvarfirði

 50 tn

 Síldarvinnslan hf, Norðfirði

 20 tn

Einherji ehf, Patreksfirði

10 tn

Glaður ehf, Bolungarvík

15 tn

Hraðfrystihúsin Gunnvör, Hnífsdal

125 tn

Þóroddur ehf, Tálknafirði

75 tn

Brim fiskeldi ehf, Akureyri

80 tn

Álfsfell ehf, Ísafirði

125 tn

 Samtals

 500 tn



Senda grein

header11


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica