Fréttir
Þorskur í eldiskvíum
Eldisþorskur

Nýjar leiðir í sjúkdómavörnum í þorskeldi

14.2.2008

Vonir standa til að nýta megi náttúruleg örverudrepandi peptíð í þorski, sem forvarnir gegn sjúkdómum í eldi.

AVS sjóðurinn styrkti forverkefni sem hafði það að markmiði að greina gerð bakteríudrepandi peptíða í þorski. Rannsóknahópurinn fann nýlega peptíð að gerðinni cathelicidin sem er hluti af náttúrulegu ónæmiskerfi þorsksins. Rannsóknir hafa sýnt að þessi hluti ónæmiskerfisins er sérstaklega mikilvægur fiskum því að mótefnasvar fiska er mjög hægvirkt.

Lítið er vitað um náttúrulegt ónæmiskerfi þorsksins og þessi uppgötvun um bakteríudrepandi peptíð er mikilvægt skref í átt til þess að skilja betur hvernig fiskar verja sig gegn sjúkdómum.

Nánari upplýsingar gefur Valerie H. Maier hjá Lífræðistofnu Háskóla Íslands

Tilvísunarnúmer AVS: S 002-07



Senda grein

header2


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica