Fréttir
Vinnslulína frá Völku
Valka_vinnslulina

Ný nákvæm vinnslulína

Hagkvæmni í íslenskum fiskiðnaði eykst enn

21.1.2008

Valka, sem er ungt íslenskt hátæknifyrirtæki í framleiðslu tækja fyrir matvælaiðnað, hefur sett upp nýja flokkunar- og pökkunarlínu fyrir ferskan fisk hjá Ný-fiski í Sandgerði.

Vinnslulínan er hvort tveggja nákvæmari og sjálfvirkari en áður hefur þekkst og bætir hráefnismeðferð og hráefnisnýtingu að sama skapi. Vinnslulínan pakkar með sjálfvirkum hætti ferskum flökum og flakabitum í umbúðir af fastri þyngd af mikilli nákvæmni. Þessari nýju tækni fylgir umtalsverð hagræðing. Vinnslulínan samanstendur af Valka RapidAligner – sem í senn flokkar, velur saman bita og raðar og innmötunarbúnaði fyrir fiskinn og frauðkassa sem hráefninu er pakkað í fyrir útflutning.

Þróun á búnaðinum hófst í upphafi árs 2006 og var þá þegar sótt um einkaleyfi. Það hefur verið gefið út á Íslandi og er nú í alþjóðlegu umsóknarferli. RapidAligner vélin var þróuð af Völku í samstarfi við Ný-fisk og Háskólann í Reykjavík með tilstyrk AVS-sjóðsins og Tækniþróunarsjóðs.

Sjá nánar fréttatilkynningu frá Völku ehf.

Tilvísunarnúmer AVS: R 036-06

Senda grein

header15


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica