Ný nákvæm vinnslulína
Hagkvæmni í íslenskum fiskiðnaði eykst enn
Vinnslulínan er hvort tveggja nákvæmari og sjálfvirkari en áður hefur þekkst og bætir hráefnismeðferð og hráefnisnýtingu að sama skapi. Vinnslulínan pakkar með sjálfvirkum hætti ferskum flökum og flakabitum í umbúðir af fastri þyngd af mikilli nákvæmni. Þessari nýju tækni fylgir umtalsverð hagræðing. Vinnslulínan samanstendur af Valka RapidAligner – sem í senn flokkar, velur saman bita og raðar – og innmötunarbúnaði fyrir fiskinn og frauðkassa sem hráefninu er pakkað í fyrir útflutning.
Þróun á búnaðinum hófst í upphafi árs 2006 og var þá þegar sótt um einkaleyfi. Það hefur verið gefið út á Íslandi og er nú í alþjóðlegu umsóknarferli. RapidAligner vélin var þróuð af Völku í samstarfi við Ný-fisk og Háskólann í Reykjavík með tilstyrk AVS-sjóðsins og Tækniþróunarsjóðs.
Sjá nánar fréttatilkynningu frá Völku ehf.
Tilvísunarnúmer AVS: R 036-06

