Kortlagning hörpudisksvæða fyrir veiðar og stofnmat
Djúpfar eða sjálfsstýrður rannsóknakafbátur er tiltölulega nýtt hugtak í hafrannsóknum. Árið 2007 fór fram forkönnun á notkun djúpfars með myndavél og hliðarsónar til að meta stofnstærð hörpudisks og til að kortleggja botngerð.
Með tilraununum var sýnt fram á að hvort tveggja er gerlegt en þær sýndu einnig að frekari rannsókna er þörf, bæði hvað varðar útfærslu á myndavél og við notkun hliðarsónars.
Verkefnið varð þannig hvati að mun viðameiri rannsóknum með djúpfari og má sjá í meðfylgjandi greinargerð hvernig margir rannsóknaaðlilar hafa tekið höndum saman í þeim tilgangi.
Hér má nálgast skýrslu verkefnisstjóra: Planned research using autonomous underwater vehicles in Iceland.

