Þorskensím drepur fuglaflensuveirur
Í nýlegri rannsókn kom það í ljós að ensím unnið úr þorskinnyflum drap 99% af fuglaflensuveirum af H5N1 stofni.
Emsímið sem notað var er það sama og Dr. Jón Bragi hefur notað í Pensím vörurnar sínar sem hafa einkum verið notaðar til að vinna á ýmsum húðmeinum. Rannsóknin var unnin í London, en Ensímtækni sá um vinnslu ensímsblöndunnar sem notuð var við tilraunirnar.
Megin niðurstaða þessa verkefnis er að Pensímlausnirnar drepa fuglaflensuveiruna, en ekki frumur manna. Þetta eru mjög jákvæðar og hvetjandi niðurstöður sem gefa tilefni til frekari rannsókna á áhrifum Pensíms á aðrar veirur og ekki síst því hvernig Pensím drepur fuglaflensuveiruna.
Þá er einnig mjög áhugavert að gera klínískar rannsóknir á varnarmætti Pensíms gagnvart inflúensusýkingum í mönnum og hvernig þróa megi vörur til varnar sýkingu. Ensímtækni ehf er þegar komið í samstarf við sænskt fyrirtæki um þróun á hálstöflum, nefþvottaúða, hálsúða og munnskoli sem innhalda Pensím.

