Fjármagn til úthlutunar eykst á næsta ári
Hámarksstyrkir hækka um 2 milljónir króna
Ráðgert er að sjóðurinn verði starfræktur að minnsta kosti til ársins 2014. AVS sjóðurinn var stofnaður árið 2003 og upphaflega var gert ráð fyrir að hann yrði einungis starfræktur til fimm ára. Í fjárlögum eru fyrri áætlanir lagðar til hliðar og sjóðurinn festur í sessi. Þetta er mikil viðurkenning á starfsemi sjóðsins og greinilegt að hún og stuðningur sjóðsins hefur fallið í góðan jarðveg.
Á næsta ári er sjóðnum ætlað að styrkja kynbætur í þorskeldi um 25 m.kr og markaðsátak vegna bleikjuafurða um 10 m.kr. Þá verða til úthlutunar um 300 m.kr. til annarra verkefna sem auka verðmæti sjávarfangs. Auk þessa hefur sjóðurinn úthlutað styrkjum vegna eldis sjávardýra samtals 19,1 m.kr.

Aðrar breytingar á starfsemi sjóðsins verða þær að markaðsverkefni verði metin í samvinnu við aðra faghópa. Af þeim sökum verður ekki starfræktur sérstakur markaðshópur sem metur slík verkefni án þátttöku annarra faghópa. En áfram verður lögð áhersla á að markaðsverkefni berist sjóðnum. Myndin hér á síðunni skýrir ef til betur hvaða stöðu markaðsverkefnin fá innan faghópa AVS.

