Aukin nýting í flakavinnslu
Með því að sprauta fiskpróteinum í flök má auka nýtingu umtalsvert. Matís hefur á undanförnum árum verið að gera tilraunir með að vinna prótein af hryggjum og öðrum afskurði í bolfiskvinnslu.
Vinnsla fiskpróteinanna með þeim hætti sem Matís hefur unnið að hér á landi er alveg ný og því var brugðið á það ráð að stofna fyrirtækið Iceprotein ehf, þar sem vinnslan krefsts sértæks vinnslubúnaðar og vinnsluferils. Iceprótein ehf var fundinn staður á Sauðárkróki en Fisk Seafood þar í bæ hefur tekið virkan þátt í verkefnum fyrirtækisins.
Eftir flökun bolfisks er að finna töluvert magn fiskholds á hryggjunum, notast var við sérstakan háþrýstiþvottabúnað til að ná þessu holdi af. Háþrýstibúnaðurinn hafði verið þróaður fyrir allnokkrum árum en ekki verið nýttur við vinnslu áður. Þegar holdinu hefur verið náð af hryggjunum þá er það keyrt í gegnum sérhæfðan vinnslubúnað Iceproteins og framleitt svokallað protein-isolat.
Protein-isolatinu er síðan blandað saman við veikan saltpækil og því sprautað í fersk flök með sprautusöltunarvél. Við fyrstu mælingar kom í ljós að auka má nýtingu allnokkuð með þessari aðferð án þess að rýra gæði flakanna. Unnið var bæði með þorsk og bleikju í þessum tilraunum og bendir árangurinn til að með notkun próteins-isolats í bland við veikan saltpækil megi ná töluvert betri nýtingu en ef eingöngu er notast við saltpækil.
AVS hefur á undanförnum árum styrkt allnokkur próteinverkefni sem tengjast þessu nýja fyrirtæki og nú er árangurinn að koma í ljós og má vænta innan nokkurra mánuða nýrra niðurstaðna og nýrra afurða frá Iceprótin ehf á Sauðárkróki.
Tilvísunarnúmer AVS: R 019-05

