Sæbjúgun á markað í Kína
ICP ehf hefur tekið þátt í vörusýningum í Kína á undanförnum árum þar sem þau hafa verið að kynna íslensk sæbjúgu. Eins og við var að búast þá gerast hlutirnir hægt en nú virðist vera að rofa til í sölumálunum. Stefnt er að því að tryggja samböndin við fullvinnsluaðila í Kína og koma sæbjúgunum fullunnum í verslanir. Rík hefð er fyrir neyslu sæbjúgna í Asíu og er mikil fjölbreytni í framsetningu og vinnslu. ICP hefur látið fullvinna íslensk sæbjúgu í Kína og pakkað þeim í sérhannaðar umbúðir. Sjá má nánari upplýsingar um afurðirnar á nýrri heimasíðu fyrirtækisins www.icp.is .
Reykofnin-Grundarfirði ehf hefur verið í samstarfi við ICP með útvegun sæbjúgnanna, en þeir hafa sérhæft sig í veiðum og vinnslu á þessari nýju tegund sem útflutningur er hafinn á.
Tilvísunarnúmer AVS: S 022-06
