Fréttir
Ari Þorsteinsson verkefnisstjóri
Humarhótel
Ari Þorsteinsson, verkefnisstjóri

Aukið verðmæti humarafla

28.6.2007

AVS sjóðurinn hefur stutt rannsóknir og þróun við að veiða, vinna og flytja ferskan lifandi humar á markað erlendis. Verkefnið er komið vel á veg og eru fyrstu sendingarnar komnar til kaupenda.

Verkefnið spannar alla þætti dreifikeðju lifandi humars eða veiðar, vinnslu, geymslu, dreifingu og markaðssetningu. Verkefnið er unnið í samvinnu Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf, Skinney Þinganes hf, Matís ohf, Hafrannsóknastofnunar og Promens Dalvík ehf. En hjá Frumkvöðlasetri Austurlands starfar verkefnisstjórinn Ari Þorsteinsson.

Lokið er við að gera athuganir með lifun á trollveiddum humri. Mundi Sæm SF 1 hefur verið leigður til tilraunaveiða fyrir verkefnið. Auk hans hafa Skinney SF og Þórir SF bátar Skinneyjar Þinganes hf. séð um veiðar fyrir verkefnið þegar þannig hefur staðið á.

Fyrirhugað er að fara af stað með gildruveiðar og kanna hver áhrif slíkra veiða hafa á lifun humarsins.

Sæplast á Dalvík lagði til sérhönnuð ker til flutnings á lifandi humri og krabbadýrum. Síðan hefur verið lögð mikil áhersla á þann þátt að geyma lifandi humar í landi og láta leturhumarinn jafna sig áður en hann er sendur á markað, eins er verið að skoða geymslu til lengri tíma.

Búið er að setja upp geymslu sem í daglegu tali gengur undir nafninu humarhótel og er það staðsett í húsakynnum Skinneyjar Þinganes hf á Hornafirði. Humarhótelið gerir það mögulegt að geyma allt að eitt tonn af lifandi humri og spennandi verður að sjá hvernig og hvort gildruveiðar muni skila betri árangri varðandi lifun leturshumarsins.

 

Guðmundur H. Gunnarsson  Guðmundur með lifandi humar
 Guðmundur H. Gunnarsson, verkefnisstjóri hjá Matís ohf að skoða humar fyrir sendingu  Guðmundur kominn með einn lifandi í hendur á Sjávarútvegssýningunni í Brussel

Þróaðar hafa verið aðferðir við pökkun og flutning og hefur náðst sá árangur að hægt er að ábyrgjast 100% lifun í 48 klst ef rétt kæling er tryggð allan tímann. Fram til þessa hefur varan verið keyrð með kælibílum frá Hornafirði til Keflavíkur og hefur Icelandic Cargo séð um flutninginn og lagt margt til um þróun þessa ferlis.

Byrjað er að kynna og selja vöruna í Evrópu og var hún meðal annars til sýnis og kynningar á sjávarútvegssýningunni í Brussel 2007 og fékk humarinn mjög góðar viðtökur. Hilton Hótelkeðjan hefur m.a. keypt humar til kynningar fyrir kokka Hilton Hótelkeðjunar. 

Áætlað er að verkefninu ljúki um áramótin 2007/ 2008

 

Tilvísunarnúmer verkefnisins: R 037-05



Senda grein

header8


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica