Fréttir
Fiskrettur
Fiskréttur

Borðum enn meiri fisk

22.5.2007

AVS sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt verkefnið “Lífvirk efni í fiski – heilsufarsleg áhrif” þar sem markmiðið er að kanna áhrif fiskneyslu á heilsu. Fyrstu niðurstöður sýna að þorskur auðveldar þeim sem þurfa að léttast að ná markmiðum sínum.

Það hefur lengi verið vitað að fiskneysla hefur stuðlað að góðu heilsufari Íslendinga um áraraðir og því er það áhyggjuefni að fiskneysla ungra Íslendinga er mun minni nú en áður, eins og komið hefur fram í öðru rannsóknaverkefni sem AVS sjóðurinn styrkir (sjá nánar).

AVS verkefnið “Lífvirk efni – heilsufarsleg áhrif” er unnið í tengslum við stórt Evrópuverkefni SEAFOODplus, en niðurstöður þess verkefnis benda til að fiskneysla hafi jákvæð áhrif á stjórnun líkamsþyngdar, blóðfitu ofl. Niðurstöðurnar sýndu að orkuskert mataræði með sjávarfangi veldur meira þyngdartapi heldur en fæði án sjávarfangs, þótt það innihaldi sömu heildarorku. Vísbendingar voru um að þorskprótein auðveldi þyngdartap.

Íslenska rannsóknin

Rannsóknin var framkvæmd á eitthundrað ungum fullorðnum Íslendingum, 20-40 ára, í ofþyngd eða offitu. Mikilvægi þessa aldurshóps felst í því að of þungir fullorðnir eru áhættuhópur framtíðarinnar hvað varðar algenga króníska sjúkdóma eins og hjartasjúkdóma og sykursýki af gerð II. Þessi aldurshópur er einnig foreldrar ungra barna og er því helsti áhrifavaldur á mataræði barna, en offita barna hefur aukist töluvert á undanförnum árum. Þess vegna er mikilvægt að kenna þessum aldurshópi hollt og gott mataræði.

Borin voru saman áhrif þriggja matseðla sem neytt var í átta vikur:

1) með þorski sem aðalmáltíð fimm sinnum í viku,

2) með þorski sem aðalmáltíð þrisvar í viku

3) án sjávarfangs (viðmiðunarhópur).

Allir matseðlar voru útbúnir með upplýsingum fyrir þátttakendur um neyslu allan daginn og breytilegu magni eftir því hve mikla orku hver þátttakandi þurfti, að frádregnum 30%.

Þátttakendur komu þrisvar í mælingar á þyngd og líkamsmálum og tekið var blóðsýni í upphafi og við lok rannsóknar. Haft var samband utan heimsóknanna, þannig að samtal var við hvern þátttakanda u.þ.b. hálfs mánaðarlega. Efnagreiningar á blóðfitum, blóðsykri, og insúlíni standa nú yfir. Einnig er áætlað að greina andoxunarvirkni. Úrvinnsla úr rannsókninni er að hefjast og mun henni að mestu verða lokið í haust.

Fyrstu niðurstöður sýna að þorskur auðveldar þeim sem þurfa að léttast að ná markmiðum sínum. Taflan hér fyrir neðan sýnir meðalþyngdartap á átta vikum eftir mismunandi matseðla sem veittu jafn mikla orku, þ.e. hitaeiningar, miðað við orkuþörf hvers einstaklings.

Matseðill

Allir þátttakendur

Karlar  Konur
 Þorskur 5 x í viku

 5,65 kg

 5,58 kg

 5,72 kg

 Þorskur 3 x í viku

 4,6 kg

 5,59 kg

 4,19 kg

 Viðmiðunarhópur

 4,08 kg

 4,99 kg

 3,28 kg


Nánari upplýsingar um verkefnið má fá hjá Ingu Þórsdóttur hjá Rannsóknastofu í næringarfræði.

Tilvísunarnúmer AVS: R 048-05

Senda grein

header8


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica