Grásleppuhrognakavíar CAVKA
Nýlega lauk verkefni á markaðssetningu nýs afbrigðis af grásleppukavíar (CAVKA) í helstu störmörkuðum í Finnlandi. Verkefnið var samvinnuverkefni Fram Foods og Landssambands smábátaeiganda og styrkt af AVS rannsóknarsjóðnum.
Grásleppuhrognakavíar er vel þekktur í Evrópu einkum í Frakklandi, Þýskalandi og Skandinavíu. Grásleppuhrogn eru hins vegar óþekkt í Finnlandi og er meginástæða þess sú að finnskir stórmarkaðir gera strangar kröfur til aukefnainnihalds matvæla og leyfa t.a.m. ekki notkun gervilitarefna. Í dag er grásleppuhrognakavíar litaður með svörtum litarefnum (E 151, E 110) eða rauðum (E 124, E 110) en þessi litarefni eru ekki samþykkt af finnskum stórmörkuðum. Þær hrognaafurðir sem nú má finna á finnska markaðnum eru einkum silungahrogn, hvítfiskhrogn (lake whitefish roe) og lagarsíldarhrogn (vendace roe) en við framleiðslu þessara hrognaafurða er einungis notað salt. Engin litarefni eða rotvarnarefni eru notuð við framleiðsluna.
Í verkefninu var byggt á grásleppuhrognakavíar, CAVKA, sem þróaður var fyrir um 10 árum í samvinnu Rf, Landssambands smábátaeigenda, E. Ólafssonar h.f. og Bakkavarar (nú Fram Foods) og varan aðlöguð að kröfum finnska markaðarins. CAVKA grásleppukavíar er unnin úr léttsöltuðum ferskum grásleppuhrognum og hefur um 3 vikna geymsluþol í kæli en 2 ára geymsluþol í frysti.
Cavka grásleppukavíarinn var kynntur fyrir innkaupastjórum helstu stórmarkaða í Finnlandi þ.e. Kesko, S-Group og Tradeka en þessir 3 aðilar hafa um 80% markaðshlutdeild í Finnlandi. Innkaupastjórum leist vel á grásleppukavíarinn en enn sem komið er hafa þeir ekki samþykkt hann til sölu. Hafa ber í huga að grásleppuhrogn eru ný vara á Finnlandsmarkaði sem neytendur þekkja ekki. Það mun taka tíma að koma vörunni á markað og mun Fram Foods halda áfram að kynna grásleppuhrogn sem hluta af sínu vöruframboði og fylgjast vel með breytingum á hrognamarkaðnum í Finnlandi.
Fram Foods (www.framfoods.com) er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu kældra sjávarafurða og skyldra matvara með verksmiðjur á Íslandi, í Svíþjóð, Finnlandi og í Frakklandi og söluskrifstofu í Þýskalandi. Einnig á Fram Foods hlut í verksmiðju í Chile. Starfsmannafjöldi er um 240. Helstu framleiðsluvörur Fram Foods er niðurlögð síld, niðurlögð hrogn (grásleppuhrognakavíar, loðnuhrognakavíar, laxahrognakavíar, silungahrognakavíar og ígulkerahrogn) smyrjur ýmis konar (þorskhrognatúpukavíar, tarama, guacomole, tzatiziki, hoummous og ktipiti), rússneskar pönnukökur (blinis og canapes) og lútfiskur. Fram Foods er í dag að selja til 10 af 15 stærstu stórmörkuðum í Evrópu.

