Fréttir
Lifandi humar kominn á markað
Humar lifandi
Lifandi humar kominn á markað

AVS rannsóknasjóður úthlutar 238 milljónum til verkefna í sjávarútvegi

3.5.2007

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði á kynningarfundi AVS á Ísafirði í dag að enginn velktist í vafa um þýðingu sjóðsins fyrir sjávarútveginn. “Óhætt er að fullyrða að AVS-sjóðurinn hafi stuðlað að nýsköpun og rannsókna- og þróunarstarfsemi í greininni fyrir rúmlega tvo milljarða króna á síðastliðnum fimm árum og af því erum við afar stolt.”

AVS rannsókna- og þróunarsjóður úthlutaði í dag tæplega 238 milljónum króna til 60 verkefna í sjávarútvegi. Þetta er í fimmta sinn sem styrkir eru veittir úr sóðnum til rannsókna- og þróunarverkefna í sjávarútvegi. AVS hefur úthlutað hátt í 900 milljónum króna til á þriðja hundrað verkefna frá því sjóðurinn tók til starfa árið 2003.

AVS veitir styrki til verkefna sem snúa að fiskeldi, líftækni, markaðssetningu í sjávarútvegi, veiðar, vinnslu, búnaði og gæðamálum. Fyrir árið 2007 var sjóðnum falið að úthluta sérstaklega til markaðsátaks bleikjuafurða og til kynbóta í þorskeldi. Þessu fylgdi viðbótarfjármagn svo heildarráðstöfunarfé sjóðsins er nokkuð hærra en undanfarin ár eða samtals 254 milljónir kr.

     

Friðrik Friðriksson og Einar K Guðfinnsson

 Friðrik Friðriksson stjórnarformaður AVS og

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra á

fundinum í dag

Umsóknafrestur var 1. febrúar s.l. og bárust sjóðnum 114 umsóknir þar sem sótt var um rúmlega 500 milljónir kr. Á vegum sjóðsins starfa fjórir faghópar sem í starfa 35 manns og lögðu þessir aðilar faglegt mat á umsóknirnar sem lagt var til grundvallar við úthlutun.

Í langflestum tilfellum er hvert verkefni samstarfsverkefni margra aðila og mjög algengt er að í verkefnum vinni saman fyrirtæki, rannsóknastofnanir og háskólar. Sjóðurinn hefur því skapað vettvang fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi til að afla sér nýrra þekkingar með aðstoð vísindafólks. Flest vinnslufyrirtæki í sjávarútvegi eru staðsett út á landi og hefur því sjóðurinn komið beint að því að styrkja stöðu þeirra með öflugu þróunar- og rannsóknastarfi.

Á árinu 2007 njóta 60 verkefni stuðnings sjóðsins. Annars vegar eru verkefni sem spanna 1-3 ár og fá styrk sem er hærri en ein milljón króna. Hins vegar eru þetta verkefni sem kalla má forverkefni eða smáverkefni til skemmri tíma en eins árs og fá ekki hærri styrk en sem nemur einni milljón króna. Að þessu sinni eru 47 rannsóknaverkefni styrkt og 13 forverkefni.

Alls bárust 7 umsóknir í markaðsátak vegna bleikjuafurða og fá fjögur þeirra styrk samtals 17,1 m.kr. 24 umsóknir bárust í fiskeldi og kynbætur í þorskeldi og fengu níu verkefni styrk í almenn fiskeldisverkefni og eitt í kynbætur í þorskeldi, samtals 71,4 m.kr. Í líftækni bárust 14 umsóknir og fengu 10 þeirra styrk samtals 25,8 m.kr. Af þessum 10 verkefnum eru fjögur smáverkefni. Umsóknir í markaðsverkefni voru 23 og fengu 12 þeirra styrk samtals 28,4 m.kr, en af þessum 12 verkefnum eru 7 smáverkefni. Langflestar umsóknir tilheyra flokknum veiðar, vinnsla, búnaður og gæði eða samtals 46 umsóknir og fengu 24 styrk að þessu sinni samtals 95,2 m.kr

Þrátt fyrir að úthlutun sé lokið að sinni þá er enn svigrúm innan ársins að styrkja nokkur smáverkefni eða forverkefni til viðbótar og er opið fyrir slíkar umsóknir fram á haust.

Nálgast má lista yfir styrkt verkefni hér



Senda grein

header8


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica