Fréttir

Þorsklifrur

Ástand þorsklifra í eldi metið - 29.5.2007

Á síðastliðnu ári styrkti AVS sjóðurinn smáverkefni, sem fjallar um leit að nýjum prótein lífmerkjum í þorsklirfum með hjálp próteinmengjagreininga. Viðbrögð þorsklirfa við fóðrun með ufsapeptíðum, sem metin voru út frá mismun í próteintjáningu meðhöndlaðra og ómeðhöndlaðra lirfusýna, voru rannsökuð Lesa nánar
 
Sandhverfu seiði

Þróun aðferða við eldi og slátrun sandhverfu - 24.5.2007

Sandhverfa (Scophthalmus maximus) er að mörgu leyti hentug tegund til eldis sem fer fram við hitastig á bilinu frá 13-20 °C. Eldi á sandhverfu fer að stórum hluta fram í strandeldi í Evrópu þar sem framleiðsla árið 2005 var um 5.000 tonn.

Lesa nánar

 
Fiskrettur

Borðum enn meiri fisk - 22.5.2007

AVS sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt verkefnið “Lífvirk efni í fiski – heilsufarsleg áhrif” þar sem markmiðið er að kanna áhrif fiskneyslu á heilsu. Fyrstu niðurstöður sýna að þorskur auðveldar þeim sem þurfa að léttast að ná markmiðum sínum.

Lesa nánar

 
Cavka kaviar

Grásleppuhrognakavíar CAVKA - 11.5.2007

Nýlega lauk verkefni á markaðssetningu nýs afbrigðis af grásleppukavíar (CAVKA) í helstu störmörkuðum í Finnlandi. Verkefnið var samvinnuverkefni Fram Foods og Landssambands smábátaeiganda og styrkt af AVS rannsóknarsjóðnum.

Lesa nánar

 
Lifandi humar kominn á markað

AVS rannsóknasjóður úthlutar 238 milljónum til verkefna í sjávarútvegi - 3.5.2007

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra sagði á kynningarfundi AVS á Ísafirði í dag að enginn velktist í vafa um þýðingu sjóðsins fyrir sjávarútveginn. “Óhætt er að fullyrða að AVS-sjóðurinn hafi stuðlað að nýsköpun og rannsókna- og þróunarstarfsemi í greininni fyrir rúmlega tvo milljarða króna á síðastliðnum fimm árum og af því erum við afar stolt.”

Lesa nánar

 

header15


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica