Fréttir
Formflok
Formflok

Fisklím, hvað er nú það?

13.4.2007

Upp úr 1980 voru víða framleiddar svokallaðar formkökur úr fiski, þar sem blokkarhráefni var mótað í mismunandi form með hjálp véla. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins nú Matís ohf fékk styrk frá AVS sjóðnum til að kanna áhrif fisklíms á ýmsa þætti við þessa vinnslu.

Fisklím er blanda af fiskmarningi, vatni og salti, hér á árum áður var þessi blanda oft notuð til að bæta lögun fiskblokka og minnka að niðursagaðir blokkarbitar dyttu í sundur. Í upphafi var marningnum, vatninu og saltinu blandað saman í svokölluðum farsvélum og var þá til þykkur “grautur” sem nefnist fisklím. Fisklíminu var síðan hrært saman við blokkarhráefnið sem oft eru bitar og afskurður frá flakavinnslu.

Í stað þess að frysta þetta hráefni í blokkir sem síðan væru sagaðar niður þá hófust menn handa við að forma þetta hráefni með aðstoð véla í bita að mismunandi lögun og stærð. Notkun fisklímsins hafði jákvæð áhrif á formunina, og ekki þurfti að nota eins háan þrýsting til að ná sama árangri, það er minna var um að formflökin dyttu í sundur á leið sinni inn í frystinn.

Gæði formflakanna batnaði nokkuð þar sem vöðvabygging bitanna hélt sér betur, samloðun jókst, suðunýting varð betri og drip var nokkuð minna. Verkefnið var unnið í samvinnu við Samherja hf af sérfræðingum á Matís.

Hægt er að nálgast þrjár stuttar skýrslur um verkefnið hér fyrir neðan:

Framleiðsluferli, vörur og markaðir

Notkun fisklíms í formaða fiskbita

Fortilraunir með notkun fisklíms

Tilvísunarnúmer AVS: R 027-03

Senda grein

header19


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica