Fréttir
Afskuður
Afskurdur

Fundið fé

11.4.2007

Mikill fjárhagslegur og umhverfislegur ávinningur felst í því að nýta fiskhold eða prótein sem tapast í bolfiskvinnslu. Verðmæti geta numið hundruð milljóna króna miðað við það 60 þúsund tonna ársframleiðslu af ferskum og frosnum bolfiskafurðum. Þá fer minna af lífrænum efnum út í umhverfið með því að nýta fiskhold eða prótein í vinnslunni.

Í verkefni, sem nefnist “Vannýtt prótein í frárennslisvatni frá fiskvinnslum” er lýst úttekt á vatnsnotkun og próteintapi við flökun og roðflettingu í bolfiskvinnslu. Þar segir að ef gert er ráð fyrir að um 1% af hráefnisþyngd tapist við flökun og roðflettingu samsvarar það um 1.200 tonnum af flakaafurðum miðað við 60 þús. tonna ársframleiðslu af ferskum og frosnum bolfiskafurðum. Verðmæti geta því numið um 120-500 milljónum króna á ári, eftir því hvort fiskmassinn er verðlagður sem marningur eða verðmætari afurðir til manneldis. Rétt er að benda á að ýmsir þættir geta haft áhrif á tap fiskholds við vinnslu, s.s. ástand hráefnis og vinnslubúnaðar en ekki var lagt mat á breytileika m.t.t. þess.

      

 Prótein síað úr frárennslisvatni með 0,25-4 mm sigtum
 Protein i frarennsli
 Protein i frarennsli

 

Í verkefninu kom í ljós að vatnsnotkun var um 0,5 l/kg afurðar við flökun og sambærileg vatnsnotkun var við roðdrátt ef miðað var við vinnslu á 2 kg af fiski og 50% vinnslunýtingu. Vatnið var síað með nokkrum sigtum af mismunandi grófleika (0,25-1mm). Með grófri síun (1mm) mátti skilja mestan hluta blóðtægja og beina frá en eftir því sem að síun var fínni því hvítari og einsleitari varð fiskmassinn. Með því að einangra þurrefni úr frárennslisvatni er hægt að auk verðmæti og bæta nýtingu sjávarfangs en jafnframt stuðla að umhverfisvænni frmaleiðsluháttum. Vissulega þarf að leggja í nokkurn kostnað til að einangra próteinin en með tiltölulega einföldum síunarbúnaði mætti ná umtalsverðu magni þeirra próteina sem nú fara forgörðum í frárennsli fiskvinnslistöðva.

Verkefnið var unnið af sérfræðingum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins (nú Matís ohf) í samvinnu við Brim og Toppfisk en verkefnið var styrkt af AVS sjóðnum

Nálgast má skýrslu um verkefnið hér.

Senda grein

header12


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica