Fréttir
Þorskur
Svangur eldisþorskur

Er heilsan í lagi?

2.4.2007

AVS styrkti verkefnið Rannsóknir á bráðasvari hjá þorski, þar sem verið var að rannsaka breytingar sem verða á samsetningu blóðvökva í þorski þegar hann verður fyrir streitu, áverkum eða sjúkdómum.

Þessar breytingar eru kallaðar bráðasvar og er mjög fljótvirkt ráð skepnunnar til að vinna bug á t.d. sýkingu, þetta er ólíkt því sem kallast ónæmis- eða mótefnasvar sem tekur nokkrar vikur að koma fram hjá fiskum.

Verkefnið var hluti mastersnáms Berglindar Gísladóttur, sem fólst í því að setja upp nýja tækni að Keldum til að greina bráðasvar í blóðvökva þorsks, en Berglind sótti námskeið við háskólann í Aberdeen til að læra þessa tækni sem kölluð er tvívíddar (2D) rafdráttartækni.

Bráðasvar í þorski var meðal annars framkallað með sýkingu og kom þá í ljós lækkað magn CRP (C-reactive prótein eða bráðaprótein) í blóðvökva, sem er ólíkt því sem gerist í mönnum. Einnig sást mikill munur milli einstaklinga sem bendir til þess að þessi aðferð sé ekki hentug greiningaraðferð. Vonast er þó til að hún nýtist til að greina breytingar á öðrum próteinum í blóðvökva þorsks sem gætu gefið vísbendingar um almennt heilsufarsástand þorsks.

Sigriður, Bergljot og Berglind

Verkefnahópurinn á Tilraunastöð HÍ í meinafræðum

að Keldum

F.v. Sigríður Guðmundsdóttir, Bergljót Magnadóttir

 og Berglind Gísladóttir



Nánari upplýsingar um verkefnið má fá hjá verkefnisstjóra þess Bergljót Magnadóttur

 

Tilvísunarnúmer AVS: S 008-06



Senda grein

header20


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica