Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lokið er úttekt á stöðu þekkingar er varðar áhrif eldis á umhverfi og villta stofna. Vinnan við þessa úttekt var styrkt af AVS og framkvæmd af sérfræðingum við Háskóla Íslands, Umhverfisstofnun, Veiðimálastofnun, Hafrannsóknastofnunina og Skipulagsstofnun.
Upp úr 1980 voru víða framleiddar svokallaðar formkökur úr fiski, þar sem blokkarhráefni var mótað í mismunandi form með hjálp véla. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins nú Matís ohf fékk styrk frá AVS sjóðnum til að kanna áhrif fisklíms á ýmsa þætti við þessa vinnslu.
AVS sjóðurinn styrkti verkefni til að kanna hvort Penzim húðáburðurinn hafi læknisfræðilega verkan gagnvart sjúkdómum. Verkefnið var unnið í samstarfi við Möltuháskóla og sjúkrahús á Möltu.
AVS styrkti verkefnið Rannsóknir á bráðasvari hjá þorski, þar sem verið var að rannsaka breytingar sem verða á samsetningu blóðvökva í þorski þegar hann verður fyrir streitu, áverkum eða sjúkdómum.