Fréttir
Pökkun á ferskum fiski
Pökkun a ferskum fiski

Ný sjálfvirk pökkunarlína

29.3.2007

HB Grandi hefur tekið í notkun nýja pökkunarlínu frá Völku ehf. Pökkunarlínan er sérstaklega hönnuð fyrir pökkun á ferskum fiskafurðum með áherslu á hátt sjálfvirknistig, mikla nákvæmni, mikil afköst og góða meðferð hráefnis. AVS styrkti hluta þessa verkefnis.

Auk þess hafa starfsmenn Völku þróað nýja heildarlausn í meðferð og miðlun gagna varðandi pantanir og gefur það bæði framleiðendum og kaupendum aukna yfirsýn. Pökkunarlínan samanstendur af karahvolfara, sjálfvirkum matara, samvalsvog, pökkunarstöð, tékkvog, límmiðaprentara og brettunaraðstöðu.

Í línunni eru fjölmargar tækninýjungar þróaðar af starfsfólki Völku, sem auka skilvirkni og áreiðanleika tækjabúnaðarins.rapidweigher2

Ný gerð af samvalstæki sem hlotið hefur nafnið RapidWeigher og var þróað í samvinnu HB Granda og Völku með styrk frá AVS-rannsóknasjóðnum.

Ein tölva, s.k. Tækjaþjónn, stýrir allri vinnslulínunni. Þessi nýjung tryggir mun meiri áreiðanleika og hagkvæmni við útfærslu á vinnslulínum sem þessum.

Viðskiptavinir slá pantanir inn í RapidTrade kerfið sem er nettengt sölu- og pantanakerfi og flytur það þær á algerlega sjálfvirkan hátt í þá deild og í það tæki sem pakka skal sérhverri pöntunareiningu.

Upplýsingar um pökkunina eru fluttar á sjálfvirkan hátt frá framleiðslunni inn í RapidTrade kerfið og eru þar með samstundis orðnar aðgengilegar stjórnendum og viðskiptavinum HB Granda.

Samvalsvogin nýtir nýja gerð af samvalstæki og er hún sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Með nýju tækninni hafa náðst mjög góð afköst, afbragðs meðferð hráefnis og meiri nákvæmni en áður hefur þekkst við alsjálfvirka pökkun á ferskum fiskafurðum. Umsókn Völku um alþjóðlegt einkaleyfi á þessum nýja tækjabúnaði er langt komin.

Öflugur netþjónn í aðalhlutverki

Valka hefur þróað nýja aðferð við að stýra tækjabúnaði í fiskvinnslunni. Aðferðin byggist á því að nota öflugan netþjón, til að stýra mörgum tækjum. Þennan netþjón köllum við tækjaþjón og er einn slíkur nýttur til að stýra allri pökkunarlínunni.Yfirlitsmynd

Ávinningur þessa fyrirkomulags er aðallega tvíþættur. Í fyrsta lagi er rekstraröryggi netþjóns mun meira en þeirra tölva sem venjulega eru settar inn í sjálf tækin, einkum vegna þess að sá tækjabúnaður verður oft fyrir miklu álagi m.a. vegna titrings og rakamyndunar.

Í annan stað sparast kostnaður við að setja dýra stýriskjái á hvert tæki sem gjarnan eru aðeins notaðir endrum og sinnum. Í pökkunarlínunni eru aðeins skjáir sem starfsfólkið þarf að nota dags daglega við pökkunina en önnur tæki eru stillt í notendavænu vefviðmóti ýmist frá borðtölvum verkstjóra eða með þráðlausum handtölvum.

Viðskiptavinurinn getur fylgst með stöðu sinna pantana yfir netið

RapidTrade er nettengt sölu- og pantanaforrit og er yfirfærsla pantana á Rapid vélarnar sjálfvirkari en áður hefur þekkst. Allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi samþykktar pantanir berast milliliðalaust til viðkomandi vélar, s.s. vörutegund, skammtastærðir, magn, merkingar, breytingar og fleira. Hver tækjaþjónn heldur svo utan um gögn frá framleiðslunni á sjálfvirkan hátt og geta viðskiptavinir þar með fengið upplýsingar um stöðu sinna pantana með aðgangi sínum að RapidTrade.

Með þessu móti er búið að eyða út allri innsláttarvinnu hjá fiskseljendum auk þess sem ekki er verið að tefja starfsfólk fiskvinnslunnar með fyrirspurnum um pantanir og stöðu þeirra. Samskipti sölustjóra og starfsfólks framleiðslu einfaldast mjög mikið því RapidTrade kerfið lætur vita af breytingum á pöntunum með SMS-skilaboðum og/eða í tölvupósti auk þess sem RapidTrade kerfið heldur utan um breytingasögu pantana.

Nánari upplýsingar:

Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri, Valka ehf, GSM 660 9300.

Torfi Þ. Þorsteinsson, framleiðslustjóri HB Grandi, 550 1140


http://www.valka.is/
Senda grein

header4


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica