Fréttir
Tvö ný ker
Nýju kerin

Nýstárlegt fiskiker dregur úr rýrnun fisks

Býr yfir auknu inntaksrúmmáli

23.3.2007

Promens Dalvík áður þekkt sem Sæplast hefur hafið framleiðslu á nýstárlegu fiskikeri sem er léttara en önnur ker og með meira inntaksrúmmál en áður hefur þekkst. Hönnun keranna gerir það að verkum að þau draga úr rýrnun og mari á fiski og bæta gæði hráefnis. Fiskikerið er þróað í samvinnu við Matís ohf. (Matvælarannsóknir Íslands) og FISK Seafood á Sauðárkróki og til verkefnisins fékkst styrkur hjá AVS.

Hönnun kersins er með þeim hætti að við stöflun lokar efra kerið því neðra. Í fjögurra kera stæðu þarf því ekki nema eitt lok. Þá er búið að færa göt fyrir lyftaragafla utar á kerið svo að ekki sé hætta á að óhreinindi berist með botni í neðri ker þegar þeim er staflað. Með þessum hætti er hægt að minnka farg á fiski í neðstu lögum keranna og þar með draga úr rýrnum og mari á fiski.

Álagsprófanir á nýju kerunum hafa gefið góða raun hjá Promens. Þá er gert ráð fyrir að FISK Seafood á Sauðárkróki prófi nokkur ker í nokkrar vikur áður en varan fer endanlega í fjöldaframleiðslu.

Stefnt er að því að nýju kerin komi til með að búa yfir RFID flögu sem geymir upplýsingar um fisk frá veiðum til vinnslu og tryggir rekjanleika í gegnum vinnsluna. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar fyrir sölu á markaði því þær stuðla að auknu upplýsingaflæði og auka öryggi. Upplýsingakerfið er unnið í samstarfi FISK Seafood, Maritech og Matís, en AVS studdi einnig þennan þátt verkefnisins.Ný og gömul ker

Bjarki Magnússon hjá Promens á Dalvík segir að mikill áhugi sé fyrir þessari framleiðslu, það hafi berlega komið í ljós þegar kerið var kynnt opinberlega á Sjávarútvegssýningunni í Brussel í Belgíu á síðasta ári.

 

Nýju kerin við hliðina á eldri gerðinni



Senda grein

header13


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica