Beint í leiðarkerfi vefsins.
Viðamikil rannsókn meðal ungs fólks á aldrinum 17 til 26 ára bendir til að Íslendingar muni borða enn minna af fiski í framtíðinni en þeir gera í dag ef ekkert verður að gert. Ungt fólk borðar fisk sem aðalrétt að meðaltali 1,3 sinnum í viku sem er töluvert undir þeirri fiskneyslu sem Lýðheilsustöð ráðleggur. Fiskneysla þessa aldurshóps hefur dregist verulega saman á undanförnum árum.
Þá er komið að því að ensím úr íslenskum þorskum ratar í snyrtivörur fyrir erlendan markað. AVS sjóðurinn hefur stutt rannsókna og þróunarstarf Dr. Jóns Braga Bjarnasonar undanfarin ár.
Síðastliðið ár var unnið verkefni með styrk frá AVS rannsóknarsjóði um stöðu og tækifæri líftækni á Íslandi. Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja og AVS unnu verkefnið með sérfræðingunum Steven Dillingham og Rune Nilssen hjá Strategro og Einari Þór Bjarnasyni hjá Intellecta. Greind var staða og möguleikar líftæknigreinarinnar, styrkur hennar og veikleikar. Einnig var skoðað hvernig aðrar þjóðir hafa náð forskoti á þessu sviði.