Fréttir
Hrognasmyrja
Hrognasmyrja
Loðnuhrogn með reyktum silungi

Þróun á hrognasmyrju

16.2.2007

Fyrir nokkru lauk verkefni í að þróa hrognasmyrju úr ferskum íslenskum loðnu og/eða þorskhrognum. Verkefnið var styrkt af AVS sjóðnum. Hrognasmyrja er þekkt afurð víða um heim en sérstaklega þó í Austur Evrópu og Rússlandi.

Lítið er um þessa afurð í Vestur Evrópu og var því hugmyndin sú að þróa sambærilega vöru sem myndi höfða til íbúa í Skandinavíu, V-Evrópu og N-Ameríku. Markmiðið var að þróa blöndu sem væri stöðug við gerilsneyðingu og hefði áferðareiginleika sem lýstu sér í góðum smyrjanleika en væri samt stífari eða þéttari en hefðbundinn túpukavíar. Lausnin fólst í forvinnslu hrognanna, stillingu uppskriftar m.t.t. hráefna og hlutfalla sem og blöndunaraðferð.

Sérkenni vörunnar, borið saman við samkeppnisvörur, fólst í

(1) háu hrognainnihaldi,

(2) hrognum sem hvorki höfðu verið reykt né gerilsneydd fyrir framleiðslu

(3) að varan var gerilsneydd í heild án þess að það hefði merkjanleg áhrif á áferð og útlit.

“Neytendaprófanir” voru framkvæmdar á tveimur útgáfum af kavíarsmyrju, Loðnukavíar með hvítlauksbragði og Loðnukavíar með reyktum silungi. Sýnin voru prófuð af verkefnahópi og í framhaldinu kynntar á European Seafood Exposition (ESE) í Brussel (maí 2006). Viðtökur voru jákvæðar og ákvörðun tekin í framhaldinu um að varan væri tilbúin til uppskölunar í framleiðslu.

Verkefnið var unnið af sérfræðingun Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins (nú Matís ohf) í samvinnu við Agustson ehf í Stykkishólmi. www.agustson.com

 



Senda grein

header11


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica