Fréttir
Hreinsitækið frá Þvottatækni
Hreinsitæki
Hreinsitækið neðan í lofti lestarinnar

Nýtt tæki til þrifa

15.2.2007

Þvottatækni ehf á Seyðisfirði hefur á undanförnum árum verið að þróa tæki til þrifa á tönkum og lestum skipa. Á síðastliðnu ári fengu þeir styrk frá AVS sjóðnum til að þróa tækið áfram og koma því fyrir í lest Hoffellsins frá Fáskrúðsfirði.

Fyrir nokkru var einu tæki komið fyrir neðan í miðju lofti lestar Hoffellsins og nær vélin að hreinsa alla króka og kima lestarinnar. Vélin er þannig útbúin að hún gengur fyrir vatnsaflinu einu saman og því þarf aðeins eina vatnslögn frá dælum skipsins að tækinu.

Við prófanir hefur gengið mjög vel að þrífa lestar skipsins, en vélin vinnur á 6 kg þrýstingi og fjórir spíssar sjá um að sprauta vatninu á veggi lestarinnar og þrátt fyrir að ýmis rör og leiðslur liggi um lestarnar þá nær vélin að hreins mjög vel. Vélin er smíðuð úr ryðfríu stáli og plasti og hentar því vel í matvælavinnslu umhverfi.

HreinsitækiFylgst verður með árangri og notkun vélarinnar á yfirstandandi loðnuvertíð og svo í framhaldi af því á næstu kolmunnavertíð. Það skiptir miklu máli að lestar skipa séu hreinar sérstaklega ef ætlunin er að koma með aukin hluta uppsjávarafla til frystingar og vinnslu afurða til manneldis. Að loknum þessum tilraunum um borð í Hoffellinu þá verður unnið markvisst að því að koma þessari nýju tækni í fleiri skip. Forráðamenn Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði hafa verið mjög hjálpsamir og stutt starfsmenn Þvottatækni í að koma tækinu í notkun.

Það verður spennandi að heyra af reynslu manna um borð í Hoffellinu að lokinni loðnuvertíð, því ef tækið reynist jafn vel og fyrstu tilraunir benda til þá er komið tæki sem losar sjómenn við erfitt verk og tryggir um leið hreinar lestar.

Heimasíða Þvottatæknis: www.tornadopowertwister.com



Tilvísunarnúmer AVS: S 021-06

Senda grein

header18


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica