Fréttir
AVS könnun
Línurit úr könnun AVS

Skoðanakönnun AVS

7.2.2007

Á síðustu vikum ársins 2006 og þeirri fyrstu á nýju ári var framkvæmd skoðanakönnun meðal viðskiptavina AVS sjóðsins. Það er ekki hægt að segja annað en að niðurstaða könunarinnar sé mjög jákvæð fyrir sjóðinn.

Könnunin var send á um 340 netföng sem hafa verið skráð í tengslum við starfsemi AVS sjóðsins á undanförnum árum. Um helmingur viðtakenda var tilbúinn til að leggja okkur lið og segja okkur hvað þeim þætti um starfsemi sjóðsins.

Meirihluti svarenda voru á því að AVS sjóðurinn efli samstarf framleiðslufyrirtækja og rannsóknafyrirtækja (stofnanir og háskólar). Langflestir voru einnig á því að styrkja eigi rannsókna- og þróunarverkefni í sjávarútvegi og að það væri æskilegt að efla AVS sjóðinn umfram það sem hann er í dag.

AVS sjóðurinn á verk að vinna hvað varðar sýnileika því það voru nokkuð margir á því að sjóðurinn væri ekki nægjanlega sýnilegur. Ætla má að það sé þörf á betri kynningu verkefna og niðurstaðna þeirra. Flestir þeir sem styrk hafa fengið hafa skilað áhugaverðum niðurstöðum sem hafa verið birtar á heimasíðu sjóðsins, en því miður þá hefur stundum reynst erfitt að fá suma verkefnisstjóra til að ganga frá verkefnum á skilmerkilegan hátt.

Það er ánægjulegt að sjá að flestir eru á því að kröfur varðandi gerð umsókna sé hæfileg, því það hefur verið unnið markvisst að því að hafa kerfið ekki of flókið en samt skilvirkt. Það er mikilvægt að umsækjendur haldi áfram að senda inn ábendingar svo verklag og umsóknarferli verði sem best.

Greinilegt er að margir fylgjast með heimasíðu AVS reglulega og kynna sér það efni sem þar er að finna. Haldið verður áfram að setja inn efni og niðurstöður verkefna og eru allar ábendingar vel þegnar um hvernig best er að kynna verkefni.

Þátttakendum könnunarinnar eru þökkuð þátttakan.

Sjá má helstu niðurstöður könnunarinnar hér.



Senda grein

header19


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica