Aldrei fleiri umsóknir
Það er ekki hægt að segja annað en að vinsældir AVS sjóðsins hafi aldrei verið meiri og hafa sjóðnum borist vel yfir 100 umsóknir nú þegar, en frestur til að sækja um stærri rannsókna- og þróunarverkefni rann út 1. febrúar sl.
AVS sjóðurinn tekur á móti umsóknum vegna þorskkvóta til áframeldis og rann frestur út 22. janúar sl. Bárust 11 umsóknir að þessu sinni þar sem sótt var um 960 tonn en til úthlutunar eru 500 tonn.
Forverkefni eða smáverkefnisumsóknir eru orðnar tæplega 20 á þessu ári, en mögulegt er að sækja um slík verkefni allt árið og engir sérstakir frestir tilgreindir svo búast við fleiri umsóknum þegar líður á árið.
Nýjar umsóknir til almennra rannsókna- og þróunarverkefna og verkefna um markaðsátak bleikjuafurða eru tæplega 80 talsins. Auk þess hafa borist tæplega 20 umsóknir vegna framhaldsverkefna, svo það er mikið verk framundan hjá faghópum AVS.

