AVS til framtíðar
Síðastliðinn föstudag 26. janúar var haldinn opinn fundur um AVS sjóðinn og framtíð hans. Fundarmenn fengu tækifæri til að ræða saman um hvernig sjóðurinn getur best mætt ætlunarverki sínu, þ.e. að auka verðmæti sjávarfangs. Sjávarútvegsráðherra lagði áherslu á í erindi sínu að starfsemi sjóðsins verði tryggð til lengri tíma.
Einar Þór Bjarnason frá Intellecta stjórnaði fundinum og fól fundarmönnum nokkur verkefni til að vinna úr og meðal þess sem kom fram hjá fundarmönnum var að mikilvægt væri að AVS sjóðurinn héldi sérstöðu sinni og að hann væri mikilvægur til að koma góðum hugmyndum á markað. Einfalt umsóknarferli væri mikilvægt en jafnframt áríðandi að þeir sem fengju styrk gerðu það sýnilegt hvaðan stuðningurinn kæmi. Birting niðurstaðna væri mjög mikilvægur hluti allra verkefna AVS.
Fundarmenn voru á því að hámarksstyrkir AVS væru helst til of lágir og raunhæfara væri að miða við 10 milljónir króna, og menn ítrekuðu að sýnt væri fram á að verkefnin skiluðu ávinningi fyrir íslenskan sjávarútveg.
Þrír áhugaverðir fyrirlestrar voru fluttir um verkefni sem AVS hefur styrkt eða komið að á undanförnum árum.
Jón Ágúst Þorsteinsson frá Marorku kynnti helstu verkefni fyrirtækisins orkusparnað í fiskiskipum
Bryndís Skúladóttir frá Samtökum iðnaðarins sagði frá verkefni þar sem skoðuð er staða og tækifæri íslenskra líftæknifyrirtækja. Stefnt er að því að kynna það verkefni 1. mars n.k. og verður sagt nánar frá því á heimasíðu AVS
Valdimar Ingi Gunnarsson tók að sér að kynna þorskeldisverkefni sem Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf í Hnífsdal er að vinna að.
Friðrik Friðriksson stjórnarformaður AVS sjóðsins fór yfir helstu kennitölur sjóðsins og sýndi jafnfram helstu niðurstöður skoðunarkönnunar AVS sem fram fór um áramótin síðustu. Nánar verður sagt frá könnuninni hér á síðunni innan tíðar. En almennt má segja að könnunin sé mjög jákvæð.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra ávarpaði fundarmenn í lok fundar og kom það skýrt fram að hann telur sjóðinn mjög mikilvægan fyrir þróun og nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi. Verkefni sem sjóðurinn styrki skapi oft góðan grundvöll fyrir samstarf vítt og breitt um landið. Hann lagði áherslu á að mikilvægt væri að tryggja sjóðnum lengri framtíð en í fyrstu var talað um og að sjóðurinn héldi áfram sérstöðu sinni með svipuðum hætti og verið hefði.

