Fréttir
AVS logo
AVS

ÍTREKUN - Framtíð AVS - taktu þátt í mótun sjóðsins

Skráið ykkur á fundinn strax í dag

17.1.2007

AVS sjóðurinn og starfsemi hans hefur verið þróuð í mikilli samvinnu við aðila sjávarútvegsins. Þessir sömu aðilar hafa lýst áhuga sínum á því að halda þátttöku sinni áfram sem er vel. Framundan er skerping markmiða og stefnu sjóðsins og því býður sjóðurinn öllum áhugasömum að koma á fund á Loftleiðum föstudaginn 26. jan. nk. Kl 13-17.

Mikilvægt að skrá sig á fundinn strax í dag 23. jan. 2007

Dagskrá fundarins er í meginatriðum sú að formaður sjóðsstjórnar Friðrik Friðriksson fer yfir helstu kennitölur í starfseminni til þessa og hvernig fjármögnun sjóðsins verður á þessu ári. Einnig mun Friðrik kynna niðurstöður skoðanakönnunar um starfsemi AVS sem fram fór meðal viðskiptavina sjóðsins.

Að þessu loknu mun Einar Þór Bjarnason frá Intellecta taka við og rifja upp það helsta sem fór fram á svipuðum fundi sem haldinn var í janúar 2005.

Fundarmönnum verður síðan skipt í umræðuhópa sem taka til umræðu nokkur vel valin efni. Umræðuhóparnir taka mið af faghópum AVS, þ.e. fiskeldi, markaðsmál, líftækni og veiðar, vinnsla, búnaður og gæði.

Hóparnir kynna síðan tillögur og áherslur sínar fyrir fundarmönnum og mun sjóðstjórnin taka tillit til þeirra í sinni vinnu.

Sjávarútvegsráðherra verður viðstaddur kynningu vinnuhópa og flytur ávarp í lok fundar

Að loknum fundi verða léttar veitingar í boði sjávarútvegsráðherra .

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í mótun framtíðar sjóðsins og hafa áhrif á hvernig hann starfar, eru beðnir að skrá þátttöku sína fyrir dagslok 23. janúar nk. Í síma 422 5000 eða á netfangið avs@avs.is

Mikilvægt er að fá skráningar svo að hægt sé að tryggja pláss fyrir alla. Eins viljum við hvetja aðila til að nota sama tækifæri til að koma á framfæri umræðuefni eða hugmyndum svo að hægt sé að undarbúa þau fyrir fundinn.

Senda grein

header14


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica