Fréttir
Thorskshaus
Þorskur

Tímabært að sækja um

16.1.2007

Vonandi hafa sem flestir orðið varir við auglýsingar frá AVS sjóðnum varðandi fresti til að sækja um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna og þorskkvóta til áframeldis. Allar upplýsingar um styrki og hvernig standa skuli að umsóknum eru að finna á heimasíðu AVS og er mjög mikilvægt að allir fylgi þeim leiðbeiningum sem þar eru að finna.

Eins og undanfarin ár þá rennur umsóknafrestur vegna þorskvóta til áframeldis út nokkuð fyrr en frestur til rannsókna- og þróunarverkefna. Frestir til að sækja um:

Þorskkvóta til áframeldis er 22. janúar næstkomandi

Rannsókna og þróunarverkefni , átaksverkefni í markaðssetningu á bleikju og verkefni í líftækninetð er 1. febrúar nk.

Mjög mikilvæg er að umsóknir berist með rafrænum hætti fyrir miðnætti þann dag sem frestur rennur út. En eins og flestum er kunnugt þá þarf einnig að skila inn undirrituðu eintaki á póstfangið

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi

Skúlagötu 4

101 Reykjavík.

Undirritaða eintakið þarf að vera að öllu leyti eins og það rafræna, og nægir að póstleggja það eftir að rafræna eintakið hefur verið sent.

Að lokum er rétt að benda á að umsóknum vegna smáverkefna eða forverkefna er ekki nauðsynlegt að skila á sama tíma, það eru engir ákveðnir frestir varðandi slíkar umsóknir.



Senda grein

header6


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica