Fréttir

Bleikja

Undirbúningur bleikjuverkefna - 19.1.2007

Landssamband fiskeldisstöðva fékk stuðning hjá AVS sjóðnum til að undirbúa markaðsátak bleikjuafurða. Nú er þessu forverkefni lokið með skilum á skýrslu verkefnisstjóra, í skýrslunni er að finna ýmis mikilvæg atriði sem vert er að hafa í huga þegar byggja á upp markað fyrir íslensku bleikjuna.

Lesa nánar

 
AVS logo

ÍTREKUN - Framtíð AVS - taktu þátt í mótun sjóðsins - 17.1.2007

AVS sjóðurinn og starfsemi hans hefur verið þróuð í mikilli samvinnu við aðila sjávarútvegsins. Þessir sömu aðilar hafa lýst áhuga sínum á því að halda þátttöku sinni áfram sem er vel. Framundan er skerping markmiða og stefnu sjóðsins og því býður sjóðurinn öllum áhugasömum að koma á fund á Loftleiðum föstudaginn 26. jan. nk. Kl 13-17.

Mikilvægt að skrá sig á fundinn strax í dag 23. jan. 2007

Lesa nánar
 
Thorskshaus

Tímabært að sækja um - 16.1.2007

Vonandi hafa sem flestir orðið varir við auglýsingar frá AVS sjóðnum varðandi fresti til að sækja um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna og þorskkvóta til áframeldis. Allar upplýsingar um styrki og hvernig standa skuli að umsóknum eru að finna á heimasíðu AVS og er mjög mikilvægt að allir fylgi þeim leiðbeiningum sem þar eru að finna.

Lesa nánar

 

header8


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica