Fréttir
Saltfiskur í bakka
Saltfiskur í bakka

Útvatnaðar saltfiskur í neytendapakkningum

28.12.2006

Á undanförnum árum hafa komið á markað nýjar saltfiskafurðir, þar sem reynt hefur verið að koma til móts við breyttar kröfur neytenda, bæði hér á landi og í helstu markaðslöndum Íslendinga. Stuttur tími til undirbúnings og eldunar eru kröfur neytendans, og því var ráðist í það verkefni að kanna geymsluþol á þíddum útvötnuðum saltfiski í neytendapakkningum.

AVS styrkti verkefni sem hafði það að markmiði að þróa ferli fyrir framleiðslu á útvötnuðum, þíddum, gaspökkuðum flökum í neytendapakkningum til að auka verðmætasköpun hérlendis. Forsenda þess er að hægt sé að ná viðunandi gæðum og löngu geymsluþoli. Þannig gæti skapast grundvöllur til að flytja á erlenda markaði útvatnaðan, þíddan saltfisk í neytendapakkningum með skipum.

Í skýrslu sem verkefnisstjóri hefur skilað AVS og lesa má hér á vefnum kemur fram að hægt er að ná 3-4 vikna geymsluþoli á þíddum útvötnuðum saltfiskflökum, sem pakkað er í loftskiptar umbúðir (MAP) og geymd við 0-1°C. Það er því raunhæft að frysta útvötnuð þorskflök þíða síðan og pakka eftir þörfum markaðarins og flytja með skipum á erlendan markað. Einnig má hugssa sér að flytja út frosin útvötnuð flök sem síðan væru þídd og pökkuð erlendis og seld sem kælivara.

Skýrsla: Þídd, útvötnuð þorskflök í neytendapakkningum.

Tilvísunarnúmer AVS: R 004-05

Senda grein

header8


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica