Fréttir
AVS logo
AVS

Umsóknafrestir og nýjar leiðbeingar

28.11.2006

Á næstunni munu birtast auglýsingar frá AVS sjóðnum um umsóknafrestina á næsta ári. Miðað verður við sömu tímamörk og áður, þannig að aðalumsóknafresturinn er 1. febrúar 2007.

Útbúnar hafa verið nýjar leiðbeiningar fyrir umsækjendur, þar sem reynt er að koma í eitt skjal öllu því sem skiptir máli.

Um verður að ræða fjóra mismunandi flokka umsókna:

  1. Þorskkvóti til áframeldis
  2. Almenn rannsókna- og þróunarverkefni
  3. Markaðsátak til sölu bleikjuafurða
  4. Líftækninet í auðlindanýtingu

Frestur til að sækja um þorskkvótann er til og með 22. janúar 2007 en umsóknir í hina þrjá flokkana þurfa ða berast í síðasta lagi 1. febrúar 2007. Ef ekki hefur tekist að koma öllum nauðsynlegum upplýsingum til skila þá veitum við fúslega aðstoð. Síminn er 530 8630 eða netfang: avs@avs.is

Auglýsing 2007

Senda grein

header20


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica