Fréttir
Arsyfirlit 2006
AVS ársyfirlit 2006

Sjávarútvegsráðherra kynnir starfsemi AVS

14.11.2006

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hélt blaðamannafund í húsnæði Marorku hf í dag þar sem hann kynnti ársyfirlit AVS rannsóknasjóðsins fyrir árið 2006. Ætla má að AVS rannsóknasjóðurinn hafi frá upphafi stuðlað að nýsköpun og rannsókna- og þróunarstarfsemi fyrir um a.m.k. 1 ½ milljarð króna. Á blaðamannafundinum sagði sjávarútvegsráðherra nauðsynlegt að festa sjóðinn í sessi til lengri tíma. Hann hafi þjónað tilgangi sínum vel og verið rannsóknum og þróun í sjávarútveginum mikil lyftistöng.

Þetta er fjórða starfsár sjóðsins og var það með svipuðu sniði og árið á undan. Sjóðurinn hafði til ráðstöfunar 210 milljónir króna og eins og áður sá hann um umsóknir vegna sérstakrar fjárveitingar til rannsókna á eldi sjávardýra, en til slíkra verkefna er ráðstafað 19,1 milljón á ári. Auk þess hefur sjóðurinn samstarf við Líftækninet í auðlindanýtingu með þeim hætti að taka við umsóknum og meta þær í faghópum AVS.

Sjóðurinn veitti 65 styrki á árinu 2006, samtals að upphæð um 231 milljón króna. Að þeim verkefnum sem hlutu styrk koma 120 einstaklingar frá u.þ.b. 80 fyrirtækjum, stofnunum og háskólum.

Jón Ágúst Einar K Guðfinnsson, Friðrik Friðriksson

Jón Ágúst Þorsteinsson, framkv.stjóri Marorku hf,

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og

Friðrik Friðriksson stjórnarformaður AVS, að loknum

blaðamannafundi í húsnæði Marorku.


AVS sjóðurinn hefur auk þess umsjón með umsóknum vegna þorskkvóta til áframeldis. Faghópur AVS í fiskeldi lagði mat á þær umsóknir og lagði fram tillögur til stjórnar um úthlutun á þeim 500 tonnum sem eru til ráðstöfunar ár hvert. Sjá kynningu ráðherra.

AVS rannsóknasjóðurinn hefur gefið út ársyfirlit 2005 um starfsem sjóðsins, yfirlitið er hægt að nálgast hér.

Auk kynningar ráðherra voru kynnt verkefni sem styrkt hafa verið af AVS á undanförnum árum. Hraðfrystihúsið Gunnvör hf hefur. tekið virkan þátt í rannsókna- og þróunarverkefnum á undanförnum árum og var farið yfir helstu verkefnin og framtíðaráform fyrirtækisins í þorskeldi.Sjá kynningu.

Marorka ehf. hefur vakið mikla athygli fyrir nýsköpun og þróun á orkusparandi búnaði fyrir fiskiskip. Farið var yfir árangur þeirrar vinnu og hver stefnan er í nánustu framtíð. Sjá kynningu.



Senda grein

header10


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica