Bleikja skal það vera
Vel sótt bleikjuráðstefna var haldin föstudaginn 27. október s.l. Þar komu saman allir helstu framleiðendur bleikju og margir vísindamenn sem hafa lagt stund á rannsóknir sem tengjast eldi íslenskrar bleikju.
Valdimar Ingi Gunnarsson verkefnisstjóri fiskeldishóps AVS skipulagði ráðstefnuna í samvinnu við fiskeldishópinn. Fluttur var fjöldi áhugaverðra erinda sem nú má nálgast á http://www.fiskeldi.is/bleikjurad/dagskra.html . Valdimar hefur líka tekið saman áhugaverða skýrslu um stöðu bleikjueldis á Íslandi. Lesa skýrslu.
Fyrir liggur að framleiðsla bleikju á eftir að aukast umtalsvert á næstu árum og því hefur verið ákveðið að styrkja markaðssetningu bleikju sérstaklega. Á næstu þremur árum mun AVS sjóðurinn hafa 10 milljónir kr. á ári sérstaklega til þess verkefnis. Fljótlega verður auglýst eftir umsóknum í styrki til verkefna sem hafa það að markmiði að bæta stöðu íslenskrar bleikju á matvælamörkuðum heimsins.

